Umferðarþjónusta - Tilkynning - 14.12.2017
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.
Færð á vegum
Á Suður- og Suð-vesturlandi er víðast hvar hálka og hálkublettir.
Hálka er á flestum vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum. Flughált er á Steingrímsfjarðarheiði og þæfingur á Þröskuldum. Ófært er yfir Dynjandis- og Hrafnseyrarheiði.
Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Norðurlandi og éljagang er í Eyjafirði. Flughálka er í Langadal og Vatnsskarði eins er flughálka í Norðurárdal.
Hálka eða hálkublettir eru á flestum leiðum á Austurlandi. Með suð-austurströndinni er allvíða hálka eða hálkublettir á vegum. Ófært um Öxi og Breiðdalsheiði.
Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda í veginum.