Umferðarþjónusta - Tilkynning - 13.2.2018

Magnús Ingi Jónsson 2018-02-13 16:23

Ábendingar frá veðurfræðingi 13. feb. kl. 15:10

Litur: Appelsínugulur

Í fyrramálið er spáð A og NA ofsaveðri á Suðurlandi frá Hvolsvelli austur í Öræfi. 20-30 m/s og hviður allt að 40-50 m/s ma. undir Eyjafjöllum.  Blotnar við þessar aðstæður og þá með flughálku.  Hvasst einnig og skafrenningur í fyrramálið  frá kl. 6 á Hellisheiði, uppsveitum. Suðurlands og á Kjalarnesi. 

Færð og aðstæður

Á Suðvestur- og Suðurlandi er hálka eða snjóþekja á flestum leiðum og víða snjókoma eða éljagangur. Þæfingsfærð er á nokkrum útvegum en þungfært á Kjósarskarðsvegi og í Landeyjum.

Snjóþekja eða hálka er á vegum á Vesturlandi og éljagangur á stöku stað.

Það er snjóþekja eða hálka á flestum leiðum á Vestfjörðum. Þæfingsfærð er á Mikladal, Hálfdán og á Steingrímsfjarðarheiði og þungfært innan Barðastrandar. Ófært er á Klettshálsi.

Hálka eða snjóþekja er á vegum á Norðurlandi, víða skafrenningur.

Á Austurlandi er snjóþekja eða hálka á vegum og víða skafrenningur. Hálka eða snjóþekja er með suðausturströndinni en flughálka á Mýrdalssandi.

Súðavíkurhlíð

Snjóflóðahætta er möguleg í dag, þriðjudaginn 13. febrúar.


Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. Í dag þriðjudaginn 13. feb. hafa  nokkur hreindýr verið  við veginn austast á Háreksstaðaleið.