Umferðarþjónusta - Tilkynning - 13.12.2018
Færð og aðstæður
Vestfirðir: Hálkublettir á nokkrum fjallvegum en greiðfært á láglendi.
Norðurland: Þar eru hálkublettir á Þverárfjalli og á nokkrum útvegum.
Norðausturland: Hálkublettir eru á nokkrum leiðum og hálka á Mývatns- og Möðrudalsöræfum.
Austurland: Þar er víða hálka eða hálkublettir inn til landsins en greiðfært er með ströndinni.
Framkvæmdir á Grindavíkurvegi
Framkvæmdir standa yfir á Grindavíkurvegi, milli afleggjara að Seltjörn og Bláa lónsins. Unnið er á einni akrein í einu og umferðarhraði tekinn niður. Búast má við einhverjum umferðartöfum en áætluð verklok eru í árslok 2018.