Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.12.2018

Sigfríður Hallgrímsdóttir 2018-12-12 21:32

Færð og aðstæður

Vesturland: Víðast hvar greiðfært en eitthvað um hálku eða hálkubletti á fjallvegum.

Vestfirðir: Hálkublettir eða hálka á heiðum og hálsum en greiðfært á láglendi.

Norðurland:  Víða greiðfært en þó eru hálkublettir eða hálka á nokkrum leiðum.

Norðausturland: Víða hálka eða hálkublettir inn til landsins en að mestu greiðfært með ströndinni.

Austurland: Hálka er á Fjarðarheiði og Vatnsskarði eystra og gera má ráð fyrir hálku eða hálkublettum á flestum útvegum. Greiðfært er með ströndinni.

Framkvæmdir á Grindavíkurvegi

Framkvæmdir standa yfir á Grindavíkurvegi, milli afleggjara að Seltjörn og Bláa lónsins. Unnið er á einni akrein í einu og umferðarhraði tekinn niður. Búast má við einhverjum umferðartöfum en áætluð verklok eru í árslok 2018.