Umferðarþjónusta - Tilkynning

Sveinbjörn Hjálmarsson 2014-11-25 21:53

Ábendingar frá veðurfræðingi

Veður fer heldur kólnandi og á láglendi verður staðbundið aðstæður til myndunar ísingar og hálku ýmist vegna krapaélja eða þegar frystir við jörð. Á einkum við um vestan- og suðvestanvert landið. Einnig norðan- og norðaustanlands, sérstaklega á fjallvegunum.

Færð

Hálkublettir eru á Hellisheiði og Sandskeiði en hálka í Þrengslum. Hálkublettir eru á Mosfells og Lyngdalsheiði, en annars er greiðfært á Suður og Suðausturlandi. Hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði en hálka í Hrútafirði. Hálkublettir eru á Bröttubrekku og Svínadal. Hálkublettir eru einnig nokkuð víða á norðanverðu landinu.
Á Vestfjörðum er þæfingsfærð og skafrenningur á Hrafnseyrarheiði en snjóþekja og éljagangur á  Dynjandisheiði, Trostansfirði og á Kleifaheiði. Hálka og éljagangur er á Steingrímsfjarðarheiði, Þröslkuldum, Hálfdán og Mikladal.
Hálkublettir eru á Fjarðarheiði fyrir austan.

Hæðatakmörkun á Breiðholtsbraut við Norðlingaholt

Verið er að byggja göngubrú milli Seláss og Norðlingaholts og því hafa verið settar
upp hæðarslár á Breiðholtsbraut í báðar áttir sunnan hringtorgs við Rauðavatn.  
Fyrst er komið að hliði með skynjurum sem setja af stað blikkljós og flautur á seinna hliðinu.  Á seinna hliðinu eru slár yfir götuna í hæð 4,35 yfir malbiki. Hámarkshraði í gegnum vinnusvæði er 30 km/klst. Hægt er að aka hjáleið um Suðurlandsveg og Norðlingabraut.

Þungatakmarkanir

Vegna aurbleytu er ásþungi takmarkaður við 7 tonn á Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði, og eins í Fossfirði, Reykjafirði og Trostansfirði.


Lokun vegna eldsumbrota

Almannavarnir hafa lokað  leiðum á hálendinu Norðausturlands, norðan Dyngjufjalla. Vegurinn vestan við Dettifoss er einnig lokaður að hluta. Hægt er að sjá lokuð svæði hér.

Akstur á hálendisvegum yfir veturinn

Hálendisvegir eru aðeins í þjónustu yfir sumarið og utan þess tíma er færð ekki könnuð. Á haustin þegar snjóað hefur til fjalla, eru vegirnir merktir ófærir í varúðarskyni þar sem miklar líkur eru á að færð hafi spillst. Yfir veturinn er akstur á hálendisvegum að jafnaði ekki óheimill, séu menn á nægilega stórum tækjum en aksturinn er á ábyrgð ökumanns. Mikilvægt er að fara ekki út í óþarfa tvísýnu og hafa í huga að víða er takmarkað símasamband.  Nú er akstur þó bannaður á ákveðnum vegum vegna eldsumbrotanna og eins er akstur á hálendisvegum bannaður á vorin þegar frost er að fara úr jörð, til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum og náttúru.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. Sjá staðsetningu hreindýra hér.