Umferðarþjónusta - Tilkynning
Ábendingar frá veðurfræðingi
Skil fara í dag norður yfir landi með samfelldri úrkomu og NA-stormi. Gera má ráð
fyrir hríðarveðri og skafrenningi, einkum á Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði, en
almennt er að hlána og vindur gengur smámsaman niður um sunnan- og austanvert landið.
Færð
Á Suðurlandi eru vegir greiðfærir.
Vegir eru mikið auðir við Faxaflóa en hálka eða hálkublettir á flestum fjallvegum.
Hálka eða krapi er á öllum helstu fjallvegum á Vestfjörðum. Krapi og óveður er á Hálfdán og Mikladal og hálkublettir og óveður á Klettshálsi. Ófært er á Hrafnseyrarheiði og ekkert gert í dag sökum veðurs. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Dynjandiheiði. Þæfingsfærð er á leiðinni norður í Árneshrepp á Ströndum. Óveður er í Reykhólasveit.
Á Norðurlandi er sumstaðar hálka eða hálkublettir á vegum. Hálka og óveður er á Hófaskarði.
Hálkublettir eru á fjallvegum á Austurlandi. Ófært á Vatnsskarði eystra. Autt er með suðausturströndinni.
Framkvæmdir
Unnið er að nýjum áfanga á Álftanesvegi og er reiknað með að vinnunni ljúki föstudaginn 7. nóvember. Vegna framkvæmdanna þarf að fara hjáleið um Garðaholt og Garðaveg. Vegfarendur eru hvattir til að fara varlega enda vegurinn mjór miðað við þá umferð sem um hann þarf að fara á framkvæmdatímanum.
Lokun vegna eldsumbrota
Almannavarnir hafa lokað leiðum á hálendinu Norðausturlands, norðan Dyngjufjalla. Vegurinn vestan við Dettifoss er einnig lokaður að hluta. Hægt er að sjá lokuð svæði hér.
Akstur á hálendisvegum yfir veturinn
Hálendisvegir eru aðeins í þjónustu yfir sumarið og utan þess tíma er færð ekki könnuð. Á haustin þegar snjóað hefur til fjalla, eru vegirnir merktir ófærir í varúðarskyni þar sem miklar líkur eru á að færð hafi spillst. Yfir veturinn er akstur á hálendisvegum að jafnaði ekki óheimill, séu menn á nægilega stórum tækjum en aksturinn er á ábyrgð ökumanns. Mikilvægt er að fara ekki út í óþarfa tvísýnu og hafa í huga að víða er takmarkað símasamband. Nú er akstur þó bannaður á ákveðnum vegum vegna eldsumbrotanna og eins er akstur á hálendisvegum bannaður á vorin þegar frost er að fara úr jörð, til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum og náttúru.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. Sjá staðsetningu hreindýra hér.