Umferðarþjónusta - Tilkynning
Færð
Á Suðurlandi er hálka og éljagangur á Hellisheiði og hálkublettir á Sandsskeiði og í Þrengslum. Einnig eru hálkublettir eða hálka á nokkrum fáfarnari leiðum.
Á Vesturlandi og Vestfjörðum er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum en sumstaðar snjóþekja einnig er þoka á Holtavörðuheiði.
Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á Norðurlandi og eins er þoka í Húnavatnssýslu.
Á Austurlandi er hálka eða snjóþekja á vegum en greiðfært frá Reyðarfirði með suðausturströndinni.
Tafir á Álftanesvegi
Verið er að endurnýja slitlag á Álftanesvegi, á 600 metra kafla frá hringtorgi við Bessastaðaveg að Garðavegi, og má búast við talsverðri truflun á umferð á meðan. Áætlað er að verkið standi út þessa viku. Vegfarendur eru hvattir til að fylgja merkingum og jafnframt er beðist velvirðingar á þeim óþægindum sem af þessu kunna að leiða.
Lokun vegna eldsumbrota
Almannavarnir hafa lokað leiðum á hálendinu Norðausturlands, norðan Dyngjufjalla. Vegurinn vestan við Dettifoss er einnig lokaður að hluta. Hægt er að sjá lokuð svæði hér.
Akstur á hálendisvegum yfir veturinn
Hálendisvegir eru aðeins í þjónustu yfir sumarið og utan þess tíma er færð ekki könnuð. Á haustin þegar snjóað hefur til fjalla, eru vegirnir merktir ófærir í varúðarskyni þar sem miklar líkur eru á að færð hafi spillst. Yfir veturinn er akstur á hálendisvegum að jafnaði ekki óheimill, séu menn á nægilega stórum tækjum en aksturinn er á ábyrgð ökumanns. Mikilvægt er að fara ekki út í óþarfa tvísýnu og hafa í huga að víða er takmarkað símasamband. Nú er akstur þó bannaður á ákveðnum vegum vegna eldsumbrotanna og eins er akstur á hálendisvegum bannaður á vorin þegar frost er að fara úr jörð, til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum og náttúru.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. Sjá staðsetningu hreindýra hér.