Umferðarþjónusta - Tilkynning

Kolbrún Benediksdóttir 2014-10-23 9:50

Færð

Það er hálka og þoka á Hellisheiði.

Það eru hálkublettir víða í uppsveitum á Suðurlandi.

Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á Vesturlandi og á Vestfjörðum.

Á Norðurlandi vestra er hálka og éljagangur.

Hálka og éljagangur er á Norðausturlandi. Snjóþekja, hálkublettir og éljagangur eru frá Kelduhverfi með ströndinni í Vopnafjörð. Þæfingur og skafrenningur er á Hólasandi.

Á Austurlandi er hálka en hálkublettir eru með ströndinni í Djúpavog. Éljagangur er mjög víða. Þæfingur er á Vatnsskarði eystra og á Öxi.

Tafir á Álftanesvegi

Verið er að endurnýja slitlag á Álftanesvegi, á 600 metra kafla frá hringtorgi við Bessastaðaveg að Garðavegi, og má búast við talsverðri truflun á umferð á meðan.  Áætlað er að verkið standi út þessa viku. Vegfarendur eru hvattir til að fylgja merkingum og jafnframt er beðist velvirðingar á þeim óþægindum sem af þessu kunna að leiða.

Lokun vegna eldsumbrota

Almannavarnir hafa lokað  leiðum á hálendinu Norðausturlands, norðan Dyngjufjalla. Vegurinn vestan við Dettifoss er einnig lokaður að hluta. Hægt er að sjá lokuð svæði hér.


Framkvæmdir

Það er verið að endurbyggja göngu- og hjólastíg meðfram Álftanesvegi á um 1 km kafla, til suðurs frá hringtorgi við Bessastaðaveg. Gerður hefur verið göngustígur til bráðabirgða milli Fógetatorgs og Garðavegar en hjólandi umferð þarf að nota akbrautina á þessum kafla meðan á vinnunni stendur. Vegfarendur eru beðnir að sýna varúð og tillitsemi, og virða merkingar.

Akstur á hálendisvegum yfir veturinn

Hálendisvegir eru aðeins í þjónustu yfir sumarið og utan þess tíma er færð ekki könnuð. Á haustin þegar snjóað hefur til fjalla, eru vegirnir merktir ófærir í varúðarskyni þar sem miklar líkur eru á að færð hafi spillst. Yfir veturinn er akstur á hálendisvegum að jafnaði ekki óheimill, séu menn á nægilega stórum tækjum en aksturinn er á ábyrgð ökumanns. Mikilvægt er að fara ekki út í óþarfa tvísýnu og hafa í huga að víða er takmarkað símasamband.  Nú er akstur þó bannaður á ákveðnum vegum vegna eldsumbrotanna og eins er akstur á hálendisvegum bannaður á vorin þegar frost er að fara úr jörð, til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum og náttúru.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. Sjá staðsetningu hreindýra hér.