Umferðarþjónusta - Tilkynning
Lokun á Suðurlandsvegi 20. september
Vegna vinnu við vegrið verður Suðurlandsvegur lokaður í akstursátt til Reykjavíkur á milli hringtorganna við Norðlingavað og Rauðavatn laugardaginn 20. september. frá kl. 08:00 til kl.15:00. Umferð verður beint um hjáleið um Norðlingavað, Norðlingabraut, Árvað og Breiðholtsbraut. Engin truflun verður á umferð til austurs.
Vinna í Múlagöngum
Vegna vinnu í Múlagöngum má búast við umferðartöfum föstudags- og laugardagskvöld frá kl. 18 til 24.
Framkvæmdir á Hellisheiði
Unnið er við að koma fyrir stálræsi/undirgöngum undir Hringveg á Hellisheiði á móts við gatnamótum inn á Gígahnúksveg. Umferðarhraði hefur verið tekinn niður í 50 km/klst í gegnum þetta svæði og er umferð hleypt um hjáleið. Áætlað er að þessu verki ljúki 4. október.
Lokun vegna eldsumbrota
Almannavarnir hafa lokað leiðum á hálendinu Norðausturlands, norðan Dyngjufjalla. Einnig nokkrum leiðum upp úr Bárðardal og við Grænavatn. Vegurinn vestan við Dettifoss er einnig lokaður að hluta. Hægt er að sjá lokuð svæði hér.
Brú á Langjökulsvegi
Vegna vinnu við brúna á Geitá á Langjökulsvegi (nr. 551) er gert ráð fyrir að brúin verði lokuð til 25. september.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. Sjá staðsetningu hreindýra hér.