Umferðarþjónusta - Tilkynning
Lokun vegna eldsumbrota
Almannavarnir hafa lokað leiðum á hálendinu Norðausturlands, norðan Dyngjufjalla. Einnig nokkrum leiðum upp úr Bárðardal og við Grænavatn. Vegurinn vestan við Dettifoss er einnig lokaður að hluta. Hægt er að sjá lokuð svæði hér.
Rampur af Fífuhvammsvegi að Reykjanesbraut
Í dag, miðvikudaginn 17. september, er gert ráð fyrir að malbika ramp af Fífuhvammsvegi að Reykjanesbraut (SA ramp). Rampinum verður lokað meðan á framkvæmdum stendur en hjáleiðir verða merktar. Gert er ráð fyrir að vinnan standi frá kl. 09:00 til 15:00.
Framkvæmdir á Suðurlandsvegi
Unnið er við að setja upp vegrið á miðju vegar á Suðurlandsvegi, á milli hringtorga við Rauðavatn og Norðlingaholt. Búast má við minniháttar töfum þar sem unnið er á miðju vegar og umferð er vísað út á vegöxl. Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar. Áætluð verklok eru 20. september.
Framkvæmdir á Hellisheiði
Unnið er við að koma fyrir stálræsi/undirgöngum undir Hringveg á Hellisheiði á móts við gatnamótum inn á Gígahnúksveg. Umferðarhraði hefur verið tekinn niður í 50 km/klst í gegnum þetta svæði og er umferð hleypt um hjáleið. Áætlað er að þessu verki ljúki 4. október.
Lokun á Langjökulsvegi
Vegna vinnu við brúna á Geitá á Langjökulsvegi (nr. 551) er gert ráð fyrir að brúin verði lokuð til 25. september.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. Sjá staðsetningu hreindýra hér.