Umferðarþjónusta - Tilkynning
Lokað !
Almannavarnir hafa lokað leiðum á hálendinu Norðausturlands, norðan Dyngjufjalla. Einnig nokkrum leiðum upp úr Bárðardal og við Grænavatn. Vegurinn vestan við Dettifoss er einnig lokaður að hluta. Hægt er að sjá þær hér.
Tafir
Í dag og næstu daga frá kl.10:00 til kl.23:00 verður unnið við framhjáhlaup á Kjalarnesi við Esjuberg. Búast má við minniháttar töfum á meðan vinna stendur yfir.
Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.
Færð og aðstæður
Víða er unnið að viðhaldi á vegum, ekki síst endurnýjun á slitlagi. Vegfarendur eru beðnir að sýna varúð og tillitsemi í slíkum aðstæðum og virða merkingar.
Lokun á Langjökulsvegi
Vegna vinnu við brúna á Geitá á Langjökulsvegi (nr. 551) er gert ráð fyrir að brúin verði lokuð frá 18. ágúst til 25. september vegna framkvæmda.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. Sjá staðsetningu hreindýra hér.