Umferðarþjónusta - Tilkynning

Kristinn Jónsson 2014-08-30 11:39

Ábendingar frá veðurfræðingi, hviðuveður - sandfok

Í nótt og framan af morgundeginum gengur SA stormur hratt yfir landið. Sunnan og suðvestanlands er spáð veðurhæð allt að 20-25 m/s og við þær aðstæður má reikna með hviðum 30-40 m/s frá því í nótt og fram undir hádegi s.s. undir Eyjafjöllum, á utanverðu Kjalarnesi, undir Hafnarfjalli og eins utantil á Snæfellsnesi. Norðaustanlands má síðan gera ráð fyrir umtalsverðu sandfoki s.s. á Mývatns- og Möðrudalsöræfum, einkum yfir miðjan daginn á morgun.

Lokað !

Almannavarnir hafa lokað  leiðum á hálendinu Norðausturlands, norðan Dyngjufjalla. Einnig nokkrum leiðum upp úr Bárðardal og við Grænavatn. Vegurinn vestan við Dettifoss er einnig lokaður. Hægt er að sjá þær hér.

Tafir

Í dag og næstu daga frá kl.10:00 til kl.23:00 verður unnið við framhjáhlaup á Kjalarnesi við Esjuberg. Búast má við minniháttar töfum á meðan vinna stendur yfir.

Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.

Færð og aðstæður

Víða er unnið að viðhaldi á vegum, ekki síst endurnýjun á slitlagi. Vegfarendur eru beðnir að sýna varúð og tillitsemi í slíkum aðstæðum og virða merkingar.

Lokun  á Langjökulsvegi

Vegna vinnu við brúna á Geitá á Langjökulsvegi (nr. 551) er gert ráð fyrir að brúin verði lokuð frá 18. ágúst til 25. september vegna framkvæmda.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. Sjá staðsetningu hreindýra hér.