Umferðarþjónusta - Tilkynning
Vinna á Reykjanesbraut.
Vegna vinnu við malbikun á Reykjanesbraut á Hlíðartorgi (Hringtorg við Lækjargötu) og kaflanum frá Hlíðartorgi við N1 og þaðan í áttina að Kaplakrika, verður veginum lokað á meðan að framkvæmd stendur. Hjáleiðir verða um Strandgötu og Reykjavíkurveg. Gert er ráð fyrir að vinnan standi milli 20 og 7 að morgni.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar á vinnusvæðinu.
Færð og aðstæður
Víða er unnið að viðhaldi á vegum, ekki síst endurnýjun á slitlagi. Vegfarendur eru beðnir að sýna varúð og tillitsemi í slíkum aðstæðum og virða merkingar.
Siglufjarðarvegur
Jarðsig hefur verið viðvarandi á Siglufjarðarvegi að undanförnu og skvompur eða brot geta myndast skyndilega. Því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát.
Lokun á Langjökulsvegi frá 12. ágúst
Brúin á Geitá á Langjökulsvegi (nr. 551) verður lokuð frá 12. ágúst til 22. september vegna framkvæmda.
Vinna í Múlagöngum
Verið er að endurnýja rafkerfi í Múlagöngum og því má búast við umferðartöfum þar yfir daginn, milli kl. 8 og 18. Vegfarendur eru beðnir að gæta varúðar og virða hraðatakmarkanir meðan á framkvæmdum stendur.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.