Umferðarþjónusta - Tilkynning

Kolbrún Benediksdóttir 2014-07-24 11:56

Lokun á Öskjuvegi F894

Vegurinn frá Dreka og inn að Öskju verður lokaður frá kl: 19 til 09 að morgni af öryggisástæðum.  

Lokun  á Langjökulsvegi.

Brúin á Geitá á Langjökulsvegi nr. 551 verður lokuð frá 12. ágúst til 22. september vegna framkvæmda.

Færð og aðstæður

Víða er unnið að viðhaldi á vegum, ekki síst endurnýjun á slitlagi. Vegfarendur eru beðnir að sýna varúð og tillitsemi í slíkum aðstæðum og virða merkingar.

Siglufjarðarvegur

Jarðsig hefur verið viðvarandi á Siglufjarðarvegi að undanförnu og skvompur eða brot geta myndast skyndilega. Því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát.

Framkvæmdir

Unnið er við malbikun í dag á Fornubúðum. Gert er ráð fyrir að gatan verði lokuð við Hvaleyrabraut og Óseyrarbraut.  Hjáleiðar verða merktar og eru vegfarendur beðnir um að virða merkingar á vinnusvæðinu og sýna aðgát.

Unnið er við fræsingu á Bústaðarvegi í kvöld fimmtudaginn 24. júlí frá kl: 19 til 02. Gert er ráð fyrir að gatan verði lokuð við gatnamót Lönguhlíðar og Bústaðarvegar og að brú á Miklubraut. Hjáleiðar verða merktar og eru vegfarendur beðnir um að virða merkingar á vinnusvæðinu og sýna aðgát.


Múlakvísl

Þar sem unnið er við nýja brú yfir Múlakvísl austan við Vík í Mýrdal er umferð beint um hjáleiðir á vinnusvæðinu. Vegfarendur er beðnir að aka varlega um framkvæmdasvæðið og virða merkingar.

Vinna í Múlagöngum

Verið er að endurnýja rafkerfi í Múlagöngum og því má búast við umferðartöfum þar yfir daginn, milli kl. 8 og 18. Vegfarendur eru beðnir að gæta varúðar og virða hraðatakmarkanir meðan á framkvæmdum stendur.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.


Sjá staðsetningu hreindýra hér.