Umferðarþjónusta - Tilkynning
Færð og aðstæður
Greiðfært er um flesta vegi á landinu.
Nú er búið að opna veginn yfir Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði en þar er greiðfært. Ekki er þó orðið fært um Trostansfjörð.
Búið er að opna vegin yfir Öxi en þar er krapasnjór.
Akstursbann á hálendinu
Meðan frost er að fara úr jörð þarf víða að banna allan akstur á hálendinu til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum og náttúru. Þeir sem hyggja á fjallaferðir eru beðnir að kynna sér ástand á viðkomandi leiðum og virða akstursbann þar sem það er í gildi. Sjá nánar hér
Múlakvísl
Vegagerðin vinnur að byggingu nýrrar brúar yfir Múlakvísl austan við Vík í Mýrdal.
Vegna framkvæmdanna verður umferð beint um hjáleið. Vegfarendur er beðnir að aka varlega um framkvæmdasvæðið og virða merkingar um hámarkshraða.
Þungatakmarkanir
Vegna aurbleytu og/eða hættu á slitlagsskemmdum þarf að takmarka ásþunga á fáeinum vegum. Frekari upplýsingar má sjá með að því að smella hér eða í síma 1777.
Vinna í Múlagöngum
Vegna vinnu við endurnýjun á rafkerfum í Múlagöngum má búast við umferðartöfum þar yfir nóttina, frá kl. 21:00 til kl. 06:00 að morgni. Vegfarendur eru beðnir að gæta varúðar og virða hraðatakmarkanir meðan á framkvæmdum stendur.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.