Umferðarþjónusta - Tilkynning

Kolbrún Benediksdóttir 2014-04-23 9:46

Færð og aðstæður

Greiðfært er orðið um flesta vegi landsins.

Mokstur er hafinn á Hrafnseyrarheiði, Dynjandisheiði og Öxi og búist er við að þær opnist á næstu dögum.

Akstursbann á hálendinu

Meðan frost er að fara úr jörð þarf víða að banna allan akstur á hálendinu til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum og náttúru. Þeir sem hyggja á fjallaferðir eru beðnir að kynna sér ástand á viðkomandi leiðum og virða akstursbann þar sem það er í gildi. Sjá nánar hér

Múlakvísl

Vegagerðin vinnur að byggingu nýrrar brúar yfir Múlakvísl austan við Vík í Mýrdal.
Vegna framkvæmdanna verður umferð beint um hjáleið.
Vegfarendur er beðnir að aka varlega um framkvæmdasvæðið og virða merkingar um hámarkshraða.

Framkvæmdir

Í dag miðvikudaginn 23. apríl frá kl.09:30 til kl.16:00 verður unnið við vegrið á Suðurlandsvegi við Hólm. Búast má við smá töfum á umferð sérstaklega á leið til Reykjavíkur.
Vinnusvæðið er tekið niður í 50 km hámarkshraða á klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.

Þungatakmarkanir

Vegna aurbleytu og/eða hættu á slitlagsskemmdum þarf sumsstaðar að takmarka ásþunga. Frekari upplýsingar má sjá með að því að smella hér eða í síma 1777.

Vinna í Múlagöngum

Vegna vinnu við endurnýjun á rafkerfum í Múlagöngum má búast við umferðartöfum þar yfir nóttina, frá kl. 21:00 til kl. 06:00 að morgni. Vegfarendur eru beðnir að gæta varúðar og virða hraðatakmarkanir meðan á framkvæmdum stendur.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.

Sjá staðsetningu hreindýra hér.