Umferðarþjónusta - Tilkynning

Ingibjörg Daníelsdóttir 2014-04-20 17:13

Færð og aðstæður

Helstu vegir eru auðir á Suðurlandi. Hálkublettir eru á Bláfjallavegi, Mosfellsheiði og Kjósarskarðsvegi.

Á Vesturlandi er snjóþekja og skafrenningur á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku en annars eru hálkublettir nokkuð víða.

Það hefur gengið á með éljum á Vestfjörðum og þar eru víða hálkublettir á láglendi en sumsstaðar snjóþekja eða hálka á fjallvegum.  Ófært er norður í Árneshrepp.

Á Norðurlandi  er snjóþekja á Þverárfjalli, snjóþekja og skafrenningur á Öxnadalsheiði en hálkublettir á Vatnsskarði og fáeinum útvegum.

Greiðfært er að heita má um allt austanvert landið.

Akstursbann á hálendinu

Meðan frost er að fara úr jörð þarf víða að banna allan akstur á hálendinu til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum og náttúru. Þeir sem hyggja á fjallaferðir eru beðnir að kynna sér ástand á viðkomandi leiðum og virða akstursbann þar sem það er í gildi. Sjá nánar hér

Þungatakmarkanir

Vegna aurbleytu og/eða hættu á slitlagsskemmdum þarf sumsstaðar að takmarka ásþunga. Frekari upplýsingar má sjá með að því að smella hér eða í síma 1777.


Vinna í Múlagöngum

Vegna vinnu við endurnýjun á rafkerfum í Múlagöngum má búast við umferðartöfum þar yfir nóttina, frá kl. 21:00 til kl. 06:00 að morgni. Vegfarendur eru beðnir að gæta varúðar og virða hraðatakmarkanir meðan á framkvæmdum stendur.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.

Sjá staðsetningu hreindýra hér.