Umferðarþjónusta - Tilkynning

Sveinfríður Högnadóttir 2014-04-16 16:18

Ábending frá veðurfræðingi

Grunn lægðarmiðja er yfir landinu vestanverðu og er hún á austurleið. Í kringum
lægðina er éljaloft og bakki með samfelldri úrkomu sunnanlands. Í kjölfar
lægðarinnar kemur hæðarhryggur með þurru, en köldu lofti. Vaxandi lægð á
Grænlandshafi á morgun og slydda og snjókoma frá skilum hennar vestanlands um og
upp úr miðjum degi.

Færð og aðstæður

Hálkublettir eru á fáeinum vegum í uppsveitum á Suðurlandi. Hálkublettir eru á Vesturlandsvegi við Korpu.

Á Vesturlandi og Vestfjörðum er mikið orðið autt á láglendi en víða er nokkur hálka á fjallvegum. Snjóþekja eða hálkublettir eru nokkuð víða í uppsveitum Borgarfjarðar. Snjóþekja er norður í Árneshrepp.

Það er víðast orðið autt á Norðurlandi en þó eru hálkublettir á Þverárfjalli og éljagangur á Öxnadalsheiði. Hálkublettir og éljagangur er á Siglufjarðarvegi. 

Hálkublettir eru á Mývatns- og Mörðudalsöræfum en vegir á Austurlandi eru annars greiðfærir.

Akstursbann á hálendinu

Meðan frost er að fara úr jörð þarf víða að banna allan akstur á hálendinu til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum og náttúru. Þeir sem hyggja á fjallaferðir eru beðnir að kynna sér ástand á viðkomandi leiðum og virða akstursbann þar sem það er í gildi. Sjá nánar hér

Þungatakmarkanir

Vegna aurbleytu og/eða hættu á slitlagsskemmdum þarf sumsstaðar að takmarka ásþunga. Frekari upplýsingar má sjá með að því að smella hér eða í síma 1777.


Vinna í Múlagöngum

Vegna vinnu við endurnýjun á rafkerfum í Múlagöngum má búast við umferðartöfum þar yfir nóttina, frá kl. 21:00 til kl. 06:00 að morgni. Vegfarendur eru beðnir að gæta varúðar og virða hraðatakmarkanir meðan á framkvæmdum stendur.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.

Sjá staðsetningu hreindýra hér.