Umferðarþjónusta - Tilkynning

Sveinfríður Högnadóttir 2016-02-14 14:07

Færð og aðstæður

Það er hálka á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum  annars er hálka eða hálkublettir á Suðurlandi.

Hálka eða hálkublettir eru á Vesturlandi og á Vestfjörðum en þó er snjóþekja á nokkrum fjallvegum.

 Á Norður- og Austurlandi er hálka og hálkublettir og eitthvað um snjóþekju.

Hálka eða hálkublettir er með suðausturströndinni.

Umferðartafir í Strákagöngum

Vegna vinnu við endurbætur á rafkerfi í Strákagöngum má búast við umferðartöfum þar á virkum dögum frá klukkan 8:00 til 18:00. Vegfarendur eru beðnir að sýna tillitssemi og virða hraðatakmarkanir.