Umferðarþjónusta - Tilkynning
Lokað
Lokað er um Sandskeið, Hellisheiði og Þrengsli en opið er um Suðurstrandarveg.
Ábendingar frá veðurfræðingi.
Skil óveðurslægðarinnar fara hratt norður yfir landið og í kjölfar þeirra nú síðdegis snýst vindátt og lægir lítið eitt. Þó er útlit fyrir hríðarveður fram á kvöld á fjallvegum austanlands. Þó það versta verði yfirstaðið í kvöld verður áfram hvasst og skafrenningur viðvarandi á hærri fjallvegum. Vestantil á landinu einnig ofanhríð eða éljagangur. Það hlýnar og blotnar allvíða. Hætt við að flughált verði þar sem klaki og snjór er fyrir, svo sem í uppsveitum Suðurlands og víða á láglendi norðanlands.
Færð og aðstæður
Lokað á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Hálkublettir og óveður eru á Kjalarnesi, hálka og óveður er við sunnanverðan Hvalfjörð. Hálka eða hálkublettir er víða á Suðurlandi.
Á Vesturlandi er hálka og hálkublettir og skafrenningur á fjallvegum. Ófært er á Fróðárheiði. Hálka og óveður er undir Hafnarfjalli. Stórhríð og hálka er á Útnesvegi.
Hálka eða snjóþekja er nánast á öllum á vegum á Vestfjörðum, þó er Þæfingsfærð á Gemlufallsheiði, Klettshálsi og hluta að djúpinu en aðeins hálkublettir á Innstrandavegi. Ófært og stórhríð er á Hálfdán, Mikladal og Kleifaheiði. Ófært um Raknadalshlíð.
Á Norðurlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum og eitthvað um skafrenning. Snjóþekja og skafrenningur er á Öxnadalsheiði.
Hálka, snjóþekja eða hálkublettir eru á vegum á Austurlandi. Greiðfært er frá Breiðdalsvík með suðausturströndinni vestur undir Öræfi en þar tekur við hálka og hálkublettir. Óveður er við Hvamm undir Eyjafjöllum.
Vinna við brú yfir Sog við Þrastalund
Vegna vinnu við brúargólf á brúnni yfir Sogið við Þrastalund verður lokað fyrir umferð á annari akreininni. Umferð verður stýrt með ljósum. Framkvæmdir munu standa yfir frá 4. mars til 20. júní.
Lokun vegna eldsumbrota
Almannavarnir hafa lokað leiðum á hálendinu Norðausturlands, norðan Dyngjufjalla. Vegurinn vestan við Dettifoss er einnig lokaður að hluta. Hægt er að sjá lokuð svæði hér.