Útgefið gæðaskjal
Skjalnúmer:-692
Útgáfudagur:05/04/2011
Útgáfa:2.0
Ábyrgðarmaður:Ásbjörn Ólafsson
D D06.51/2 Snúningssvæði til hægri/vinstri

D06.51 Snúningssvæði til hægri
D06.52 Snúningssvæði til vinstri

Reglugerð um umferðarmerki:
Merki þetta er notað þar sem snúa má löngum ökutækjum við, svo sem í jarðgöngum. Nánari upplýsingar má letra á undirmerki (J).

Vinnureglur um notkun:
D06.51 Snúningssvæði til hægri.
D06.52 Snúningssvæði til vinstri.

Til viðbótar við merkingu á snúningssvæðinu sjálfu má nota annað D06.51/52 merki ásamt undirmerki J10.11 um 500 m fyrir framan snúningssvæðið.