Útgefið gæðaskjal
Skjalnúmer:-664
Útgáfudagur:04/12/2011
Útgáfa:4.0
Ábyrgðarmaður:Ásbjörn Ólafsson
F F01 Vegvísir í strjálbýli/án vegnúmers

F01.11 Vegvísir í strjálbýli

Reglugerð um umferðarmerki:
Merki þetta má setja við vegamót. Letra skal staðarheiti eða sveitar á merkið, svo og vegnúmer og fjarlægð í km eftir því sem ástæða þykir til.

Vinnureglur um notkun utan þéttbýlis:
Ef vísað er á stað sem sést ekki þar sem merkið er skal að jafnaði geta vegalengdar.

Heimilt er að nota þjónustumerkið E05.51 sæluhús á vegvísa í strjálbýli.

Önnur dæmi um merkingar:







F01.21 Vegvísir án vegnúmers

Reglugerð um umferðarmerki:
Merki þetta má setja við vegamót við ónúmeraðar leiðir.

Vinnureglur um notkun utan þéttbýlis:
Merki þetta er einungis notað við sérstaka vetrarvegi.