Útgefið gæðaskjal
Skjalnúmer:-682
Útgáfudagur:04/12/2011
Útgáfa:2.0
Ábyrgðarmaður:Ásbjörn Ólafsson
F F21.11 Upplýsingatafla

Reglugerð um umferðarmerki:
Merki þetta má setja við veg til nánari upplýsingar fyrir vegfarendur um þjónustu, vegakerfi eða bæjarstæði.

Vinnureglur um notkun utan þéttbýlis:
Við allar upplýsingatöflur skal gera útskot á veginn þar sem hægt er að stöðva ökutæki.

Þar sem þjónusta er margþætt, s.s. þar sem nauðsyn er á fleiri en fjórum táknum og/eða þar sem upplýsingar um þjónustu eða almenna vegvísun er ófullnægjandi með einstökum merkjum, s.s. við bæjarstæði eru settar upp upplýsingatöflur.

Dæmi um upplýsingatöflur sem sýna svæði:


Á töflunni er einfaldað kort af svæðinu og í réttum hlutföllum, ef unnt er. Viðeigandi vegnúmer eru sett inn á hvítu vegina í svörtu. Staðurinn sem upplýsingataflan stendur á er merktur með rauðum ferningi og bendir á hann rauð ör.

Nöfn staða eru með hvítum stöfum. Viðeigandi þjónustutákn eru sett við hvern stað