| |
B22.11 Mörk svæðis þar sem heimild til að leggja ökutæki er takmörkuð | B22.21 Mörk svæðis þar sem heimild til að leggja ökutæki er takmörkuð. |
Reglugerð um umferðarmerki:
B22.11 Merki þetta ber að nota við akstursleiðir inn á svæði þar sem bannað er að leggja ökutæki nema í takmarkaðan tíma. Nánari upplýsingar um takmörkun skulu letraðar á merkið.
B22.21 Merki þetta ber að nota við akstursleiðir út af svæði þar sem bannað er að leggja ökutæki nema í takmarkaðan tíma.
Vinnureglur um notkun utan þéttbýlis:
Þessi merki er notuð til að afmarka svæði þar sem bannað er að leggja ökutæki samkvæmt nánari fyrirmælum sem rituð eru á B22.11.
Vinnureglur um notkun innan þéttbýlis:
Dæmi um notkun merkjanna þar sem bannað er að leggja í snúningshaus. Snúningshaus er ritað á B22.11