Útgefið gæðaskjal
Skjalnúmer:-578
Útgáfudagur:02/24/2011
Útgáfa:3.0
Ábyrgðarmaður:Ásbjörn Ólafsson
B B14.xx Takmörkuð lengd ökutækja

Reglugerð um umferðarmerki:
Mesta leyfileg lengd ökutækja, þ.m.t. samtengdra ökutækja, með eða án farms, skal letruð á merkið. Tveir síðustu stafir í númeri tákna tilgreinda lengd í heilum metrum. Þannig hefur merkið sem hér er sýnt númerið B14.10.

Vinnureglur um notkun:
Merki þetta ber að nota þar sem lengd ökutækja er takmörkuð umfram það sem sagt er fyrir um í reglugerð nr. 155/2007 um stærð og þyngd ökutækja (síðari breytingar aftan við reglugerð)

Merki þetta skal sett upp þar sem takmörkun byrjar og jafnframt er heimilt að setja merkið við upphaf tengivegar eða á leið að viðkomandi vegi og skal þá númer eða auðkenni þess vegar eða vegarkafla, þar sem takmörkunin gildir, gefið upp á undirmerki. Ef vísa þarf á aðrar leiðir má gera það með viðbótarmerkjum á upplýsingatöflu eða bráðabirgðamerki.

Sjá einnig:
Bráðabirgðamerki - Umferðartakmörkun