Útgefið gæðaskjal
Skjalnúmer:-685
Útgáfudagur:04/12/2011
Útgáfa:2.0
Ábyrgðarmaður:Ásbjörn Ólafsson
F F09 Staðarleiðamerki

F09.51 Utan þéttbýlis
F09.11 Innan þéttbýlis
Reglugerð um umferðarmerki:
Merki þetta má setja 150-250 m frá vegamótum og sýnir það einfaldaða mynd af þeim. Letra skal staðarheiti og vegnúmer á merkið eftir því sem ástæða þykir til. Á vegamótunum skal síðan setja upp vegvísa eftir því sem við á.

Vinnureglur um notkun:
Heimilt er að bæta þjónustutáknum og merkjum sveitarfélaga á merkið.

Öll hringtorg utan þéttbýlis skal merkja með staðarleiðamerki. Sjá reglur um merkingar hringtorga.

Dæmi um skilti á Ísafirði.

Stærð skiltisins er 300 x 250 sm.
Leturhæðin er 143 mm.
Dæmi um skilti á höfuðborgarsvæðinu.