Útgefið gæðaskjal
Skjalnúmer:-580
Útgáfudagur:02/24/2011
Útgáfa:4.0
Ábyrgðarmaður:Ásbjörn Ólafsson
B B16.xx Takmörkuð heildarþyngd ökutækja

Reglugerð um umferðarmerki:
Mesta leyfileg heildarþyngd ökutækja skal letruð á merkið. Takmörkunin gildir um hvert ökutæki samtengdra ökutækja. Tveir síðustu stafir í númeri tákna tilgreinda þyngd í heilum tonnum. Þannig hefur merkið sem hér er sýnt númerið B16.08.

Vinnureglur um notkun:
Merki þetta ber að nota þar sem heildarþyngd ökutækja er takmörkuð umfram það sem sagt er fyrir um reglugerð nr. 155/2007 um stærð og þyngd ökutækja (síðari breytingar aftan við reglugerð)

Merki þetta skal að jafnaði ekki sett upp nema stuttan tíma í einu, þ.e.a.s. þegar þungatakmarkanir eru í gildi.

Merki þetta skal sett upp þar sem takmörkun byrjar og jafnframt er heimilt að setja merkið við upphaf tengivegar eða á leið að viðkomandi vegi og skal þá númer eða auðkenni þess vegar eða vegarkafla, þar sem takmörkunin gildir, gefið upp á undirmerki. Ef vísa þarf á aðrar leiðir má gera það með viðbótarmerkjum á upplýsingatöflu.

Sjá nánar
Takmörkun á heildarþyngd og ásþunga ökutækja

Vinnureglur um notkun innan þéttbýlis:
Sömu reglur og utan þéttbýlis nema að bannið getið verið varanlegt.