 |
Almenn umferðarljós - P11 |
| Ljósmerkið skal vera með hringlaga ljósopi fyrir - rautt, gult og grænt ljós. Röð merkjanna skal vera rautt, - rautt og gult, grænt, gult, rautt. Ljósmerkin gilda fyrir alla umferð, nema umferð sé stjórnað sérstaklega með P21 ljósmerkjunum P21 - P61. |
.gif) |
Ljósörvar - P21(a) |
| Ljósmerkið getur verið með ljósopi fyrir rauða, gula og græna ör. Ljósörvar eru að jafnaði notaðar í tengslum við almenn umferðarljós, þannig að ljósop fyrir sama lit eru venjulega hlið við hlið. Ljósörvar gilda fyrir þá vegfarendur sem ætla að aka í þá átt sem örin vísar. Hjólreiðamaður sem ætlar að beygja til vinstri og á samkvæmt 3. mgr. 39. gr. umferðarlaga að fara beint áfram yfir vegamótin skal því fara eftir þeim merkjum sem gilda um umferð beint áfram. |
.gif) |
Ljósörvar - P21(b) |

Umferðarljós fyrir gangandi vegfarendur - P41 |
| Ljósmerkið skal vera með rauðu ljósopi sem sýnir mann í kyrrstöðu og grænu ljósopi sem sýnir mann á göngu. Grænt ljós sem slokknar og kviknar á víxl gefur til kynna að brátt skipti yfir í rautt ljós. Þar sem fleiri en eitt ljósmerki fyrir gangandi vegfarendur er í þeirri stefnu sem farið er gildir það merki sem næst er. |
 |
Umferðarljós fyrir strætisvagna - P51 |
| Ljósmerkið skal vera með hvítu ljósi í öllum þremur ljósopum.
Efsta ljósið jafngildir rauðu ljósi á almennum umferðarljósum, ljósið í miðju jafngildir gulu ljósi og neðsta ljósið jafngildir grænu ljósi. Ljósmerki þessi gilda fyrir strætisvagna og áætlunarbifreiðir |
 |
Rautt blikkandi ljós - P71 |
| Ljósmerkið getur verið með einu eða tveimur ljósum sem kvikna og slokkna á víxl. Þeim má koma fyrir þar sem er útakstur ökutækja til neyðaraksturs, flugvélar stefna þvert á veg í lágflugi og annars staðar þar sem nauðsyn ber til að loka vegi vegna sérstakrar hættu.
Ljósmerkið gefur til kynna að vegfarendur skuli nema staðar áður en komið er að stöðvunarlínu eða, ef stöðvunarlínu vantar, ljósmerki. Ökumaður skal þó ekki nema staðar ef hann, þegar ljósið kviknar, er kominn það langt fram að stöðvun muni hafa í för með sér hættu. |
 |
Gult blikkandi ljós - P72 |
| Ljósmerkið skal sýna eitt eða fleiri gul ljós sem kvikna og slokkna á víxl eða vera hverfiljós. Það merkir að vegfarendur skuli sýna sérstaka varúð. Merkið má setja upp þar sem vegavinna fer fram, við gangbrautir og annars staðar þar sem slíkrar viðvörunar er þörf, sbr. þó ljósmerki P73. |
 |
Blátt blikkandi ljós - P73 |
| Ljósmerkið skal sýna blátt ljós sem kviknar og slokknar á víxl eða vera hverfiljós. Það gefur til kynna að vegfarendur skuli sýna sérstaka varúð vegna slyss eða eldsvoða. |
|
|
|