UMFERÐARMERKI

K. Önnur merki

Eftirfarandi úrdráttur er úr Reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra 289/1995 sem finna má í reglugerðarsafni Dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.

Vegstika vinstri - K01.11 Vegstika vinstri - K01.11
Vegstikur eru notaðar til að afmarka vegarbrún. Glitmerki skulu sýna hvítt endurskin. Nota skal eitt merki við hægri brún akbrautar miðað við akstursstefnu. Við vinstri brún akbrautar með umferð í eina átt skal einnig nota eitt merki, jafn stórt og merki á hægri brún og við vinstri brún akbrautar á vegi með umferð í báðar áttir skal nota tvö aðskilin merki. Í tvíbreiðum jarðgöngum við hægri brún akbrautar miðað við akstursstefnu er heimilt að hafa merkin tvö með a.m.k. 0,3 m bili á milli og við vinstri brún akbrautar er heimilt að hafa merkin tvisvar sinnum tvö með a.m.k. 0,3 m bili á milli para. Glitmerki skulu skásett þannig að þau vísi að vegi.
Vegstika hægri - K01.11 Vegstika hægri - K01.11

Snjóstika hægri - K01.21 Snjóstika hægri - K01.21
Snjóstikur eru notaðar til að afmarka vegarbrún á snjóþungum vegum. Glitmerki skulu sýna hvítt endurskin. Nota skal eitt merki við hægri brún akbrautar miðað við akstursstefnu. Ef stikan er lengri en 1,3 m er heimilt að hafa merkin tvö með a.m.k. 0,3 m bili á milli. Við vinstri brún akbrautar á vegi með umferð í báðar áttir skal nota tvö aðskilin merki. Ef stikan er lengri en 1,3 m er heimilt að hafa merkin tvisvar sinnum tvö, með a.m.k. 0,3 m bili á milli para. Glitmerki skulu skásett þannig að þau vísi að vegi.
Snjóstika vinstri - K01.21 Snjóstika vinstri - K01.21
Snjóstikur eru notaðar til að afmarka vegarbrún á snjóþungum vegum. Glitmerki skulu sýna hvítt endurskin. Nota skal eitt merki við hægri brún akbrautar miðað við akstursstefnu. Ef stikan er lengri en 1,3 m er heimilt að hafa merkin tvö með a.m.k. 0,3 m bili á milli. Við vinstri brún akbrautar á vegi með umferð í báðar áttir skal nota tvö aðskilin merki. Ef stikan er lengri en 1,3 m er heimilt að hafa merkin tvisvar sinnum tvö, með a.m.k. 0,3 m bili á milli para. Glitmerki skulu skásett þannig að þau vísi að vegi.
Gátskjöldur í vegkanti, hægri  - K12.11 Gátskjöldur í vegkanti, hægri - K12.11
Síma- og rafmagnsstaura og aðra slíka hluti við veg sem þrengja akbraut eða valdið geta vegfarendum hættu má merkja með skjöldum með svörtum og gulum skástrikum sem vísa að vegi
Gátskjöldur í vegkanti, vinstri - K12.12 Gátskjöldur í vegkanti, vinstri - K12.12
Síma- og rafmagnsstaura og aðra slíka hluti við veg sem þrengja akbraut eða valdið geta vegfarendum hættu má merkja með skjöldum með svörtum og gulum skástrikum sem vísa að vegi
Gátskjöldur í jarðgöngum, hægri - K13.11 Gátskjöldur í jarðgöngum, hægri - K13.11
Svart- og hvítröndótta vegskildi má nota til að afmarka akbraut í jarðgöngum. Rendur skulu halla að akbraut.
Gátskjöldur í jarðgöngum, vinstri - K13.12 Gátskjöldur í jarðgöngum, vinstri - K13.12
Svart- og hvítröndótta vegskildi má nota til að afmarka akbraut í jarðgöngum. Rendur skulu halla að akbraut.
Gátskjöldur á brú, hægri - K14.11 Gátskjöldur á brú, hægri - K14.11
Brúarenda má merkja með skjöldum með svörtum og gulum skástrikum sem vísa að vegi.
Gátskjöldur á brú, vinstri - K14.12 Gátskjöldur á brú, vinstri - K14.12
Brúarenda má merkja með skjöldum með svörtum og gulum skástrikum sem vísa að vegi.
Gátskjöldur á veggreiningu - K15.11 Gátskjöldur á veggreiningu - K15.11
Þar sem vegur greinist frá öðrum vegi má setja merki með svörtum og gulum skástrikum sem vísa að vegi.
Gátskjöldur á veggreiningu - K15.21 Gátskjöldur á veggreiningu - K15.21
Þar sem vegur greinist frá öðrum vegi má setja merki með svörtum og gulum skástrikum sem vísa að vegi.
Gátstaur - K17.11 Gátstaur - K17.11
Þar sem alda hefur verið sett á akbraut til að draga úr hraða umferðar má setja upp staur með svörtum og gulum röndum beggja vegna akbrautar til frekari viðvörunar.
Stefnuör - K20.11 Stefnuör - K20.11
Þegar stefna vegar breytist og aðstæður bera það ekki greinilega með sér má setja við vegarbrún merki með svörtum og gulum ská­strikum sem mynda örvar í akstursstefnu.
Þverslá - K20.21 Þverslá - K20.21
Þegar vegur endar og aðstæður bera það ekki greinilega með sér má setja við vegarbrún merki með svörtum og gulum skástrikum sem mynda örvar í akstursstefnu.
Þverslá - K20.31 Þverslá - K20.31
Þegar vegur endar og aðstæður bera það ekki greinilega með sér má setja við vegarbrún merki með svörtum og gulum skástrikum sem mynda örvar í akstursstefnu.
Gátskjöldur vegna framkvæmda, hægri - K30.11 Gátskjöldur vegna framkvæmda, hægri - K30.11
Nota má merkingar í rauðum og hvítum litum þegar sérstök ástæða þykir til, svo sem vegna framkvæmda á eða við veg.
Gátskjöldur vegna framkvæmda, vinstri - K30.12 Gátskjöldur vegna framkvæmda, vinstri - K30.12
Nota má merkingar í rauðum og hvítum litum þegar sérstök ástæða þykir til, svo sem vegna framkvæmda á eða við veg.
Þverslá vegna framkvæmda - K31.11 Þverslá vegna framkvæmda - K31.11
Nota má merkingar í rauðum og hvítum litum þegar sérstök ástæða þykir til, svo sem vegna framkvæmda á eða við veg.
Þverslá vegna framkvæmda - K32.11 Þverslá vegna framkvæmda - K32.11