UMFERÐARMERKI



H. Bráðabirgðamerki

Eftirfarandi úrdráttur er úr Reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra 289/1995 sem finna má í reglugerðarsafni Dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.

Bráðabirgðamerkjum er ætlað að vara ökumenn við tímabundnum breytingum á vegakerfi. Bráðabirgðamerki skal vera rétthyrndur ferhyrningur þannig að tvær hliðar séu láréttar. Tákn skulu vera í viðeigandi litum á appelsínugulum grunni. Texti skal vera svartur. Stærð bráðabirgðamerkja skal háð samþykki vegamálastjóra að því er varðar þjóðvegi utan kaupstaða og kauptúna en ella lögreglustjóra.

Umferðartakmörkun - H Umferðartakmörkun - H
Umferðartakmörkun
Varpland - H Varpland - H
Varpland, notað þar sem líkur eru á að fuglar séu á vegi.