UMFERÐARMERKI



E. Þjónustumerki

Eftirfarandi úrdráttur er úr Reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra 289/1995 sem finna má í reglugerðarsafni Dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.

Þjónustumerkjum er ætlað að gefa vegfarendum upplýsingar um þjónustu sem í boði er á leið þeirra.
Þjónustumerki skal vera rétthyrndur ferhyrningur 500 mm á breidd og 600 mm á hæð. Tákn er að jafnaði svart á hvítum grunni með bláum ramma.
Vegamálastjóri setur reglur um uppsetningu þjónustumerkja við þjóðvegi utan kaupstaða og kauptúna en lögreglustjórar í þéttbýli.

Slysahjálp - E01.11 Slysahjálp - E01.11
Merki þetta er notað til að gefa til kynna stað þar sem slysahjálp er veitt.
Heilsugæsla - E01.12 Heilsugæsla - E01.12
Merki þetta er notað til að vísa á heilsugæslustöð sem aðeins er opin hluta sólarhrings á virkum dögum, sbr. reglug. 348/1998.
Lögregla - E01.21 Lögregla - E01.21
Merki þetta er notað til að vísa á lögreglustöð.
Lyfjaverslun - E01.31 Lyfjaverslun - E01.31
Merki þetta er notað til að vísa á lyfjaverslun.
Neyðarskýli - E01.41 Neyðarskýli - E01.41
Merki þetta vísar á neyðarskýli. Notkun skýlisins er ekki leyfileg nema í neyðartilvikum.
Neyðarsími eða talstöð - E01.51 Neyðarsími eða talstöð - E01.51
Merki þetta vísar á neyðarsíma eða neyðartalstöð. Notkun símans eða talstöðvarinnar er ekki leyfileg nema í neyðartilvikum.
Slökkvitæki - E01.61 Slökkvitæki - E01.61
Merki þetta vísar á slökkvitæki. Notkun tækisins er ekki leyfileg nema í neyðartilvikum.
Upplýsingar - E02.11 Upplýsingar - E02.11
Merki þetta er notað til að vísa á stað þar sem ferðamönnum eru veittar upplýsingar með upplýsingatöflum e.þ.h.
Upplýsingaskrifstofa - E02.12 Upplýsingaskrifstofa - E02.12
Merki þetta er notað til að vísa á stað þar sem ferðamönnum eru veittar upplýsingar á skrifstofu.
Almenningssími - E02.21 Almenningssími - E02.21
Merki þetta vísar á almenningssíma þar sem aðstæður gera slíkt æskilegt, t.d. í strjálbýli.
Almenningssalerni - E02.31 Almenningssalerni - E02.31
Merki þetta vísar á stað þar sem er almenningssalerni.
Þurrsalerni (kamar) - E02.32 Þurrsalerni (kamar) - E02.32
Merki þetta vísar á stað þar sem er þurrsalerni eða kamar fyrir ferða­fólk.
Losun skolptanka - E02.35 Losun skolptanka - E02.35
Merki þetta vísar á stað þar sem hægt er að losa skolptanka bifreiða og hjólhýsa, sbr. reglug. 348/1998.
Miðbær - E02.41 Miðbær - E02.41
Merki þetta vísar á miðbæjarsvæði.
Iðnaðaðsvæði - E02.45 Iðnaðaðsvæði - E02.45
Merki þetta vísar á iðnaðarsvæði
Orlofshúsahverfi - E02.46 Orlofshúsahverfi - E02.46
Merki þetta vísar á þyrpingu orlofshúsa samtaka eða einstaklinga. Húsin eru almennt ekki boðin ferðafólki til leigu.
Viti - E02.48 Viti - E02.48
Merki þetta vísar á aðkomuleið að vita.
Athyglisverður staður innanhúss - E02.59 Athyglisverður staður innanhúss - E02.59
Merki þetta er notað þar sem ástæða þykir til að benda veg­farendum á athyglisverða staði innanhúss sem eru opnir almenn­ingi, aðra en þá sem eru merktir með sérstöku tákni.
Athyglisverður staður - E02.61 Athyglisverður staður - E02.61
Merki þetta er notað þar sem ástæða þykir til að benda vegfarend­um á athyglisverða staði, aðra en þá sem eru merktir með sérstöku tákni.
Gönguleið - E02.62 Gönguleið - E02.62
Merki þetta vísar á upphaf gönguleiðar.
Áningarstaður - E02.63 Áningarstaður - E02.63
Merki þetta vísar á stærri áningarstað þar sem eru bifreiðastæði, borð og bekkir.
Útsýni - E02.64 Útsýni - E02.64
Merki þetta vísar á stað þaðan sem útsýni er gott.
Útsýni með hringsjá - E02.65 Útsýni með hringsjá - E02.65
Merki þetta vísar á stað þar sem er hringsjá og gott útsýni.
Fuglaskoðun - E02.66 Fuglaskoðun - E02.66
Merki þetta vísar á stað sem hentugur er til fuglaskoðunar.
Selalátur - E02.67 Selalátur - E02.67
Merki þetta vísar á stað þar sem útsýni er yfir selalátur.
Sorpílát - E02.71 Sorpílát - E02.71
Merki þetta vísar á stað þar sem eru sorpílát.
Sorpgámar - E02.72 Sorpgámar - E02.72
Merki þetta vísar á stað þar sem eru sorpílát.
Útvarp - E02.81 Útvarp - E02.81
Merki þetta er sett upp þar sem ökumenn ættu að skipta um bylgju­lengd á FM-útvarpsviðtæki.
Bensínstöð - E03.11 Bensínstöð - E03.11
Merki þetta vísar á afgreiðslustað eldsneytis.
Bifreiðaverkstæði - E03.21 Bifreiðaverkstæði - E03.21
Merki þetta vísar á bifreiðaverkstæði.
Hjólbarðaverkstæði - E03.31 Hjólbarðaverkstæði - E03.31
Merki þetta vísar á stað þar sem gert er við hjólbarða.
Bílaleiga - E03.41 Bílaleiga - E03.41
Merki þetta vísar á bílaleigu.
Veitingastofa - E04.11 Veitingastofa - E04.11
Merki þetta vísar á veitingastofu þar sem ekki eru framreiddir heitir réttir.
Veitingahús - E04.21 Veitingahús - E04.21
Merki þetta vísar á veitingahús þar sem framreiddir eru heitir réttir.
Heimilisveitingar - E04.31 Heimilisveitingar - E04.31
Merki þetta vísar á stað þar sem matur er seldur á heimili.
Hótel, gistiheimili - E05.11 Hótel, gistiheimili - E05.11
Merki þetta vísar á gististað þar sem boðið er upp á uppbúin rúm í herbergjum.
Svefnpokapláss - E05.12 Svefnpokapláss - E05.12
Merki þetta vísar á stað þar sem boðið er upp á gistingu í svefnpoka­plássi.
Farfuglaheimili - E05.31 Farfuglaheimili - E05.31
Merki þetta vísar á gististað sem rekinn er af félögum Farfugla.
Sumarhús til leigu - E05.41 Sumarhús til leigu - E05.41
Merki þetta vísar á sumarhús til leigu.
Sæluhús - E05.51 Sæluhús - E05.51
Merki þetta vísar á sæluhús ferðafélaga þar sem að öllu jöfnu er krafist greiðslu fyrir notkun.
Tjaldsvæði - E05.61 Tjaldsvæði - E05.61
Merki þetta er notað við viðurkennd tjaldsvæði.
Hjólhýsasvæði - E05.62 Hjólhýsasvæði - E05.62
Merki þetta er notað við viðurkennd hjólhýsasvæði.
Eldunaraðstaða - E06.11 Eldunaraðstaða - E06.11
Merki þetta vísar á stað þar sem eldunaraðstaða fylgir gistirými.
Sturta - E06.21 Sturta - E06.21
Merki þetta vísar á stað þar sem ferðafólk getur komist í sturtu.
Heitur pottur - E06.31 Heitur pottur - E06.31
Merki þetta vísar á stað þar sem ferðafólk getur komist í heitan pott.
Þvottavél - E06.41 Þvottavél - E06.41
Merki þetta vísar á stað þar sem ferðafólk getur fengið að þvo fatnað í þvottavél.
Fundaaðstaða - E06.51 Fundaaðstaða - E06.51
Merki þetta vísar á stað þar sem boðið er upp á fundaaðstöðu, sbr. reglug. 348/1998.
Aðgangur að neti - E06.61 Aðgangur að neti - E06.61
Merki þetta vísar á stað þar sem boðið er upp á aðgang að tölvu með nettengingu.
Sundstaður - E07.11 Sundstaður - E07.11
Merki þetta vísar á sundstað. Geta má þess hvenær opið er, á upplýsingatöflu, sbr. reglug. 348/1998.
Íþróttahús - E07.12 Íþróttahús - E07.12
Merki þetta vísar á íþróttahús.
Íþróttavöllur - E07.13 Íþróttavöllur - E07.13
Merki þetta vísar á íþróttavöll.
Hestaleiga - E07.21 Hestaleiga - E07.21
Merki þetta vísar á stað þar sem hestar eru boðnir til leigu.
Skeiðvöllur - E07.22 Skeiðvöllur - E07.22
Merki þetta vísar á skeiðvöll.
Hesthúsahverfi - E07.23 Hesthúsahverfi - E07.23
Merki þetta vísar á hesthúsahverfi.
Hestakerruleiga - E07.24 Hestakerruleiga - E07.24
Merki þetta vísar á stað þar sem hægt er að leigja kerrur sem eru sérstaklega ætlaðar til flutnings á hestum.
Veiðileyfi - E07.31 Veiðileyfi - E07.31
Merki þetta vísar á stað þar sem seld eru veiðileyfi.
Sjóstangaveiði - E07.32 Sjóstangaveiði - E07.32
Merki þetta vísar á stað þar sem boðið er upp á bátsferðir til sjóstangaveiði.
 Strandstangveiði - E07.33 Strandstangveiði - E07.33
Merki þetta vísar á stað þar sem hægt er að stunda fiskveiðar í sjó með veiðistöng af strönd. Ef krafist er greiðslu fyrir veiðileyfi fást upplýsingar um það á veiðistað.
Hvalaskoðun - E07.35 Hvalaskoðun - E07.35
Merki þetta vísar á stað þar sem boðið er upp á bátsferðir til hvalaskoðunar, sbr. reglug. 427/2000.
Skíðalyfta, togbraut - E07.41 Skíðalyfta, togbraut - E07.41
Merki þetta vísar á skíðasvæði þar sem er togbraut.
Skíðalyfta með stólum - E07.42 Skíðalyfta með stólum - E07.42
Merki þetta vísar á skíðasvæði þar sem er stólalyfta.
Skíðagöngusvæði - E07.43 Skíðagöngusvæði - E07.43
Merki þetta vísar á skíðagöngusvæði þar sem brautir eru troðnar eða stikaðar.
Snjóbílaferðir - E07.47 Snjóbílaferðir - E07.47
Merki þetta vísar á stað þar sem boðið er upp á ferðir með beltabifreið, sbr. reglug. 427/2000.
Golfvöllur - E07.51 Golfvöllur - E07.51
Merki þetta vísar á golfvöll.
Skotsvæði - E07.55 Skotsvæði - E07.55
Merki þetta vísar á svæði sem er ætlað til skotæfinga.
Mótorhjólabraut - E07.58 Mótorhjólabraut - E07.58
Merki þetta vísar á svæði sem er ætlað til mótorhjólaaksturs (mótorkrossbraut).
Vélsleðar til leigu - E07.61 Vélsleðar til leigu - E07.61
Merki þetta vísar á stað þar sem vélsleðar eru til leigu.
Vatnaþotur til leigu - E07.62 Vatnaþotur til leigu - E07.62
Merki þetta vísar á stað þar sem vatnaþotur eru til leigu.
Reiðhjól til leigu - E07.63 Reiðhjól til leigu - E07.63
Merki þetta vísar á stað þar sem reiðhjól eru til leigu.
Bátar til leigu - E07.64 Bátar til leigu - E07.64
Merki þetta vísar á stað þar sem bátar eru til leigu.
Fjórhjól til leigu - E07.65 Fjórhjól til leigu - E07.65
Merki þetta vísar á stað þar sem fjórhjól eru til leigu.
Kajakar til leigu - E07.66 Kajakar til leigu - E07.66
Merki þetta vísar á stað þar sem kajakar eru til leigu.
Sjóskíði - E07.71 Sjóskíði - E07.71
Merki þetta vísar á stað þar sem boðið er upp á sjóskíðaiðkun.
Gúmmíbátaferðir - E07.72  Gúmmíbátaferðir - E07.72
Merki þetta vísar á stað þar sem boðið er upp á ferðir með gúmmíbát niður á, sbr. reglug. 427/2000.
Kirkja - E08.11 Kirkja - E08.11
Merki þetta vísar á kirkju.
Kirkjugarður - E08.12 Kirkjugarður - E08.12
Merki þetta vísar á kirkjugarð.
Banki - E08.21 Banki - E08.21
Merki þetta vísar á banka.
Hraðbanki - E08.22 Hraðbanki - E08.22
Merki þetta vísar á hraðbanka, sbr. reglug. 348/1998.
Pósthús - E08.31 Pósthús - E08.31
Merki þetta vísar á pósthús.
Ferðamannaverslun - E08.41 Ferðamannaverslun - E08.41
Merki þetta vísar á verslun þar sem boðið er upp á matvörur og aðrar ferðavörur.
Kjörbúð - E08.42 Kjörbúð - E08.42
Merki þetta vísar á verslun þar sem boðið er upp á matvörur og aðrar ferðavörur.
Bakarí - E08.43 Bakarí - E08.43
Merki þetta vísar á bakarí.
Söluskáli - E08.44 Söluskáli - E08.44
Merki þetta vísar á söluskála þar sem boðið er upp á sælgæti, gos­drykki og annað þess háttar.
Handverk - E08.45 Handverk - E08.45
Merki þetta vísar á stað þar sem handverk er til sölu, sbr reglug. 348/1998.
Gróðurhús - E08.46 Gróðurhús - E08.46
Merki þetta vísar á gróðurhús þar sem afurðir eru til sölu, sbr. reglug. 348/1998.
Listasafn - E08.51 Listasafn - E08.51
Merki þetta vísar á listasafn.
Bókasafn - E08.52 Bókasafn - E08.52
Merki þetta vísar á bókasafn.
Sædýrasafn - E08.53 Sædýrasafn - E08.53
Merki þetta vísar á sædýrasafn.
Húsdýragarður - E08.57 Húsdýragarður - E08.57
Merki þetta vísar á stað þar sem húsdýr eru til sýnis.
Ferðamannafjós - E08.58 Ferðamannafjós - E08.58
Merki þetta vísar á býli þar sem gestum gefst kostur á að skoða kýr í fjósi.
Hundahótel - E08.61 Hundahótel - E08.61
Merki þetta vísar á stað þar sem hundar eru teknir í gæslu, sbr. reglug. 348/1998.
Dýralæknir - E08.65 Dýralæknir - E08.65
Merki þetta vísar á dýraspítala eða stofu dýralæknis, sbr. reglug. 427/2000.
Barnaleikvöllur - E08.71 Barnaleikvöllur - E08.71
Merki þetta vísar á leikvöll barna eða afgirt leiksvæði.
Tónlistarflutningur - E08.81 Tónlistarflutningur - E08.81
Merkið vísar á stað þar sem er tónlistarhátíð eða þar sem tón­listarflutningur fer fram.
Bílferja - E09.11 Bílferja - E09.11
Merki þetta vísar á bílferju. Þar sem ástæða þykir til að taka fram brottfarartíma, skal það gert með upplýsingatöflu.
Bátsferðir - E09.12 Bátsferðir - E09.12
Merki þetta vísar á stað þar sem eru bátar sem veita ferðamönnum þjónustu.
Vöruhöfn - E09.15 Vöruhöfn - E09.15
Merki þetta vísar á hafnarsvæði fyrir vöruflutninga.
Fiskihöfn - E09.16 Fiskihöfn - E09.16
Merki þetta vísar á hafnarsvæði þar sem fiskiskip landa afla sínum.
Flugvöllur fyrir áætlunarflug - E09.21 Flugvöllur fyrir áætlunarflug - E09.21
Merki þetta vísar á leið að flugvelli, í stefnu til hægri.
Flugvöllur fyrir áætlunarflug - E09.22 Flugvöllur fyrir áætlunarflug - E09.22
Merki þetta vísar á leið að flugvelli, í stefnu til vinstri.
Flugvöllur fyrir áætlunarflug - E09.23 Flugvöllur fyrir áætlunarflug - E09.23
Merki þetta vísar á leið að flugvelli, í stefnu beint áfram.
Flugbraut - E09.31 Flugbraut - E09.31
Merki þetta vísar á flugbraut fyrir smærri flugvélar.