UMFERÐARMERKI



B. Bannmerki

Eftirfarandi úrdráttur er úr Reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra 289/1995 sem finna má í reglugerðarsafni Dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.

Bannmerkjum er ætlað að banna eða mæla fyrir um umferð. Bannmerki eru flest hringlaga með rauðum jaðri og gulum miðfleti, en annars eins og sýnt er í 5. gr. Á hinum gula fleti skal merkið skýrt nánar með táknmynd eða svörtu letri.

Allur akstur bannaður - B01.11 Allur akstur bannaður - B01.11
Merki þetta ber að nota þar sem umferð hvers konar ökutækja er bönnuð í báðar akstursáttir.
Innakstur bannaður - B01.21 Innakstur bannaður - B01.21
Merki þetta ber að nota þar sem umferð hvers konar ökutækja er bönnuð inn á veg.
Akstur vélknúinna ökutækja bannaður - B03.11 Akstur vélknúinna ökutækja bannaður - B03.11
Merki þetta ber að nota þar sem umferð vélknúinna ökutækja er bönnuð.
Akstur vélknúinna ökutækja, annarra en tvíhjóla, bannaður - B03.21 Akstur vélknúinna ökutækja, annarra en tvíhjóla, bannaður - B03.21
Merki þetta ber að nota þar sem umferð vélknúinna ökutækja, annarra en tvíhjóla, er bönnuð.
Akstur vörubifreiða bannaður - B03.31 Akstur vörubifreiða bannaður - B03.31
Merki þetta ber að nota þar sem umferð vörubifreiða er bönnuð. Ef bannið nær ekki til allra vörubifreiða skal mesta leyfileg heildarþyngd letruð á undirmerki J 16.xx.
Akstur hópbifreiða bannaður - B03.32 Akstur hópbifreiða bannaður - B03.32
Merki þetta ber að nota þar sem umferð hópferðabifreiða er bönnuð. Ef bannið nær ekki til allra hópbifreiða skal mesta leyfileg heildarþyngd letruð á undirmerki J16.xx.
Akstur ökutækja með vatnsspillandi farm bannaður - B03.35 Akstur ökutækja með vatnsspillandi farm bannaður - B03.35
Merki þetta ber að nota á svæðum þar sem grunnvatn er notað til neyslu. Ef sérstaklega stendur á má nota merkið utan slíkra svæða.
Hættulegur farmur - B03.36 Hættulegur farmur - B03.36
Merki þetta ber að nota þar sem nauðsynlegt er að banna eða takmarka umferð með hættulegan farm, t.d. sprengiefni, bensín eða annað eldsneyti. Þetta getur t.d. átt við í jarðgöngum.
Akstur dráttarvéla, torfærutækja á hjólum og vinnuvéla bannaður - B03.41 Akstur dráttarvéla, torfærutækja á hjólum og vinnuvéla bannaður - B03.41
Merki þetta ber að nota þar sem umferð hægfara dráttarvéla, torfærutækja á hjólum og vinnuvéla er bönnuð. Ef við á, skal gildistími banns gefin upp með undirmerki J06.11
Akstur bifhjóla bannaður - B03.51 Akstur bifhjóla bannaður - B03.51
Merki þetta ber að nota þar sem notkun bifhjóla er bönnuð.
Akstur torfærutækja á beltum (vélsleða) bannaður - B03.61 Akstur torfærutækja á beltum (vélsleða) bannaður - B03.61
Merki þetta ber að nota þar sem notkun vélsleða er bönnuð. Merkið á hvorki við á þjóðvegakerfinu né í þéttbýli þar sem umferð vélsleða er þar almennt bönnuð.
Akstur léttra bifhjóla bannaður - B03.71 Akstur léttra bifhjóla bannaður - B03.71
Merki þetta ber að nota þar sem notkun léttra bifhjóla er bönnuð.
Hjólreiðar bannaðar - B05.11 Hjólreiðar bannaðar - B05.11
Merki þetta ber að nota þar sem hjólreiðar eru bannaðar.
Hestaumferð bönnuð - B05.21 Hestaumferð bönnuð - B05.21
Merki þetta ber að nota þar sem bannað er að fara með hesta.
Umferð gangandi vegfarenda bönnuð - B05.31 Umferð gangandi vegfarenda bönnuð - B05.31
Merki þetta ber að nota þar sem umferð gangandi vegfarenda er bönnuð.
Minnsta bil milli vélknúinna ökutækja - B12.xx Minnsta bil milli vélknúinna ökutækja - B12.xx
Minnsta leyfilega bil milli vélknúinna ökutækja, þ.m.t. samtengdra ökutækja, skal letrað á merkið. Tveir síðustu stafir í númeri tákna tilgreint bil í heilum metrum. Þannig hefur merkið sem hér er sýnt númerið B12.50.
Takmörkuð breidd ökutækja - B13.xx Takmörkuð breidd ökutækja - B13.xx
Mesta leyfileg breidd ökutækja, með eða án farms, skal letruð á merkið. Tveir síðustu stafir í númeri tákna tilgreinda breidd í metrum með einum aukastaf. Þannig hefur merkið sem hér er sýnt númerið B 13.22.
Takmörkuð lengd ökutækja - B14.xx Takmörkuð lengd ökutækja - B14.xx
Mesta leyfileg lengd ökutækja, þ.m.t. samtengdra ökutækja, með eða án farms, skal letruð á merkið. Tveir síðustu stafir í númeri tákna tilgreinda lengd í heilum metrum. Þannig hefur merkið sem hér er sýnt númerið B 14.10.
Takmörkuð hæð ökutækja - B15.xx Takmörkuð hæð ökutækja - B15.xx
Mesta leyfileg hæð ökutækja, með eða án farms, skal letruð á merkið. Tveir síðustu stafir í númeri tákna tilgreinda hæð í metrum með einum aukastaf. Þannig hefur merkið sem hér er sýnt númerið B 15.35.
Takmörkuð heildarþyngd ökutækja - B16.xx Takmörkuð heildarþyngd ökutækja - B16.xx
Mesta leyfileg heildarþyngd ökutækja skal letruð á merkið. Takmörkunin gildir um hvert ökutæki samtengdra ökutækja. Tveir síðustu stafir í númeri tákna tilgreinda þyngd í heilum tonnum. Þannig hefur merkið sem hér er sýnt númerið B 16.08.
Takmörkuð heildarþyngd samtengdra ökutækja - B17.xx Takmörkuð heildarþyngd samtengdra ökutækja - B17.xx
Mesta leyfileg heildarþyngd samtengdra ökutækja skal letruð á merkið. Takmörkunin gildir einnig um einstök ökutæki. Tveir síðustu stafir í númeri tákna tilgreinda þyngd í heilum tonnum. Þannig hefur merkið sem hér er sýnt númerið B 17.20.
Takmarkaður ásþungi - B18.xx Takmarkaður ásþungi - B18.xx
Á merkið skal letra mesta leyfilega þunga á ás með fjórum hjólum. Þyngd áss með tveimur hjólum og þyngd á tví- og þríás skal vera í samræmi við reglur um þyngd ökutækja. Tveir síðustu stafir í númeri tákna tilgreinda þyngd í heilum tonnum. Þannig hefur merkið sem hér er sýnt númerið 18.05.
Stöðvunarskylda við vegamót - B19.11 Stöðvunarskylda við vegamót - B19.11
Merki þetta ber að nota við vegamót, þar sem ökumönnum ber skilyrðislaust að nema staðar og veita umferð á vegi, sem ekið er inn á eða yfir, forgang.
Sérstök stöðvunarskylda - B19.21 Sérstök stöðvunarskylda - B19.21
Merki þetta má nota þegar stöðva skal ökutæki annars staðar en við vegamót. Á neðri helming merkisins ber að letra skýringu á stöðvunarskyldu.
Bannað að leggja ökutæki - B21.11 Bannað að leggja ökutæki - B21.11
Merki þetta ber að nota þar sem bannað er að leggja ökutæki. Bannið tekur aðeins til þess vegarhelmings sem merkið er á. Bannið gildir í akstursstefnu frá þeim stað þar sem merkið er og að næstu vegamótum. Ef bannið á ekki að ná að næstu vegamótum má setja upp merki á þeim stað þar sem banninu á að ljúka og þar undir ör sem snýr á móti akstursstefnunni (J01.51 eða J01.52). Ef bannið nær aðeins um skamman veg má nota eitt merki með undirmerki sem tilgreinir fjarlægðina (J02.11). Ef þurfa þykir má árétta bannið með merki eða merkjum innan bannsvæðisins og þar undir örvum sem vísa í báðar áttir (J01.61). Nái bannið aðeins til tiltekinna tegunda ökutækja skal velja undirmerki með upplýsingum um það. Þegar bannað er að leggja ökutækjum á tilteknum dögum eða tilteknum tíma logs eða lengur en t.d. 30 mín. skal letra um það upplýsingar á undirmerki (J06.11 eða J07.11). Merki þetta skal ekki nota þar sem stöðumælar eru en þeir gefa til kynna að heimild til að leggja ökutæki sé takmörkuð við tiltekið tímabil gegn greiðslu.
Mörk svæðis þar sem heimild til að leggja ökutæki er takmörkuð - B22.11 Mörk svæðis þar sem heimild til að leggja ökutæki er takmörkuð - B22.11
Merki þetta ber að nota við akstursleiðir inn á svæði þar sem bannað er að leggja ökutæki nema í takmarkaðan tíma. Nánari upplýsingar um takmörkun skulu letraðar á merkið.
Mörk svæðis, þar sem heimild til að leggja ökutæki er takmörkuð, endar - B22.21 Mörk svæðis, þar sem heimild til að leggja ökutæki er takmörkuð, endar - B22.21
Merki þetta ber að nota við akstursleiðir út af svæði þar sem bannað er að leggja ökutæki nema í takmarkaðan tíma.
Bannað að stöðva ökutæki - B24.11 Bannað að stöðva ökutæki - B24.11
Merki þetta ber að nota þar sem bannað er að stöðva ökutæki, enda sé stöðvun eigi nauðsynleg vegna annarrar umferðar. Hliðstæðar reglur gilda um notkun þessa merkis og um notkun merkisins B21.11.
Skylt að veita umferð sem kemur á móti forgang - B25.11 Skylt að veita umferð sem kemur á móti forgang - B25.11
Merki þetta má nota við vegarkafla eða stað á vegi þar sem aðstæður eru þannig að ökutæki geta ekki mæst og skylt er að veita umferð sem kemur á móti forgang. Þegar merki þetta er notað skal setja merkið D05.11 upp við hinn enda vegarkafla eða hindrunar.
Sérstök takmörkun hámarkshraða - B26.xx Sérstök takmörkun hámarkshraða - B26.xx
Merki þetta ber að nota til að sýna leyfðan hámarkshraða ökutækja í km á klst. Þegar hraðamörk varða eingöngu ökutæki með ákveðinni leyfðri heildarþyngd skal það tilgreint á undirmerki J16.xx. Merkið gildir í akstursstefnu á þeim vegi sem það er sett við eða þar til önnur hraðamörk eru gefin til kynna með nýju merki B26.xx eða merki B27.xx, B28.xx, D12.11, D12.21 eða D14.11. Tveir síðustu stafir í númeri tákna tilgreindan hámarkshraða. Þannig hefur merkið sem hér er sýnt númerið B26.60.
Sérstakri takmörkun hámarkshraða lokið - B27.xx Sérstakri takmörkun hámarkshraða lokið - B27.xx
Merki þetta ber að nota þar sem sérstakri takmörkun hámarkshraða lýkur. Tveir síðustu stafir í númeri tákna tilgreindan hámarkshraða. Þannig hefur merkið sem hér er sýnt númerið B27.60.
Mörk svæðis þar sem sérstök takmörkun hámarkshraða er - B28.xx Mörk svæðis þar sem sérstök takmörkun hámarkshraða er - B28.xx
Merki þetta ber að nota við akstursleiðir inn á svæði þar sem sérstök takmörkun hámarkshraða er. Merkið gildir þar til takmörkunin er felld úr gildi með merki B29.xx, D12.21 eða D14.11. Tveir síðustu stafir í númeri tákna tilgreindan hámarkshraða. Þannig hefur merkið sem hér er sýnt númerið B28.30.
Mörk svæðis þar sem sérstakri takmörkun hámarkshraða lýkur - B29.xx Mörk svæðis þar sem sérstakri takmörkun hámarkshraða lýkur - B29.xx
Merki þetta ber að nota við akstursleiðir út af svæði þar sem sérstakri takmörkun hámarkshraða lýkur. Tveir síðustu stafir í númeri tákna tilgreindan hámarkshraða. Þannig hefur merkið sem hér er sýnt númerið B29.30.
Hægri beygja bönnuð - B30.11 Hægri beygja bönnuð - B30.11
Merki þetta má nota við vegamót þar sem hægri beygja er bönnuð.
Vinstri beygja bönnuð - B30.12 Vinstri beygja bönnuð - B30.12
Merki þetta má nota við vegamót þar sem vinstri beygja er bönnuð. Merkið felur einnig í sér að bannað er að snúa ökutæki við á vegi.
U-beygja bönnuð - B30.21 U-beygja bönnuð - B30.21
Merki þetta ber að nota þar sem bannað er að snúa ökutæki við á vegi. Merki sem er sett við vegamót táknar að bannað sé að snúa ökutæki við á þeim vegamótum. Ella táknar merkið að bannað sé að snúa ökutæki við fram að næstu vegamótum nema annað komi fram á undirmerki J02.11.
Framúrakstur bannaður - B33.11 Framúrakstur bannaður - B33.11
Merki þetta ber að nota þar sem bannað er að aka fram úr öðrum vélknúnum ökutækjum en tvíhjóla.
Framúrakstur vörubifreiða bannaður - B33.21  Framúrakstur vörubifreiða bannaður - B33.21
Merki þetta ber að nota þar sem vörubifreiðum, þ.m.t. samtengdum ökutækjum, með meiri leyfðri heildarþyngd en 3.500 kg er bannað að aka fram úr öðrum vélknúnum ökutækjum en tvíhjóla.
Banni við framúrakstri lokið - B33.31 Banni við framúrakstri lokið - B33.31
Merki þetta ber að nota þegar banni við framúrakstri lýkur. Ef bann­svæði er stutt má í stað þessa merkis nota merkið B33.11 með undirmerki J02.11.
Banni við framúrakstri vörubifreiða lokið - B33.41 Banni við framúrakstri vörubifreiða lokið - B33.41
Merki þetta ber að nota þegar banni við framúrakstri lýkur. Ef bann­svæði er stutt má í stað þessa merkis nota merkið B33.21 með undirmerki J02.11.
Afnám banna - B34.11 Afnám banna - B34.11
Merki þetta ber að nota við merkingar framkvæmda og táknar það afnám banna fyrr á svæðinu, s.s. bann við framúrakstri og lækkun hámarkshraða.