Opnun tilboða

Vetrarþjónusta: Kraginn 2021-2021, hraðútboð (EES)

3.8.2021

Opnun tilboða 3. ágúst 2021. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir, á tilteknum leiðum í Kraganum.

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í eitt ár frá töku tilboðs með heimild til framlengingar til tveggja ára eitt ár í senn. 

Heildarlengd vegakafla er 50,5 km.

Akstur vörubíla á snjómokstursleiðunum er áætlaður 50.000 km. á ári.

Verklok eru í apríl 2022.

Tilboð eru án virðisaukaskatts og miðast við samningstímann sem er 1 ár.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Óskatak ehf., Kópavogi 100.050.000 168,2 10.200
Malbikunarstöðin Höfði hf. Reykjavík 89.850.000 151,0 0
Áætlaður verktakakostnaður 59.500.000 100,0 -30.350