Opnun tilboða
Vetrarþjónusta: Höfuðborgin 2021-2022, hraðútboð (EES)
Opnun tilboða 3. ágúst 2021. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir, á tilteknum leiðum í Reykjavík.
Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í eitt ár frá töku tilboðs með heimild til framlengingar til tveggja ára eitt ár í senn.
Heildarlengd vegakafla er 43,4km.
Akstur vörubíla á snjómokstursleiðunum er áætlaður 50.000 km. á ári.
Verklok eru í apríl 2022.
Tilboð eru án virðisaukaskatts og miðast við samningstímann sem er 1 ár.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Malbikunarstöðin Höfði hf. Reykjavík | 95.850.000 | 161,1 | 5.700 |
Óskatak ehf., Kópavogi | 90.150.000 | 151,5 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 59.500.000 | 100,0 | -30.650 |