Opnun tilboða
Vetrarþjónusta 2021-2024, Klettháls
Opnun tilboða 28. september 2021. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og færðargreiningu, á Vestfjarðavegi (60) um Klettsháls og nálæga þjóðvegakafla.
Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild til framlengingar til tveggja ára eitt ár í senn.
Helstu magntölur eru:
- Færðargreining 8.100 km
- Mokstur með dráttarvél 600 tímar
- Álag vegna notkunar á snjóblásara 180 tímar
Verklok eru í apríl 2024.
Tilboð eru án virðisaukaskatts og miðast við samningstímann sem er 3 ár.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Fremri Gufudalur s.f., Fremri Gufudal | 54.382.500 | 161,5 | 16.106 |
Leifur Zakarias Samúelsson, Reykhólahreppi | 46.935.000 | 139,4 | 8.658 |
Áratog ehf., Patreksfirði | 38.277.000 | 113,7 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 33.670.383 | 100,0 | -4.607 |