Opnun tilboða
Þverárfjallsvegur (73) í Refasveit og Skagastrandarvegur (74) um Laxá (EES)
Þverárfjallsvegur (73) í Refasveit og Skagastrandarvegur (74) um Laxá (EES)
Opnun tilboða 17. ágúst 2021. Bygging nýs Þverárfjallsvegar í Refasveit frá Hringvegi norðan Blönduóss að núverandi Þverárfjallsvegi, um 8,5 km að lengd og nýs Skagastrandarvegar frá nýjum Þverárfjallsvegi að Skagastrandarvegi norðan Höskuldsstaða, um 3,3 km að lengd. Á Skagastrandarveg skal byggja nýja 106 m langa brú á Laxá í Refasveit. Brúin er í þremur höfum, steinsteypt og eftirspennt. Einnig skal byggja nýjar tengingar og heimreiðar, samtals um 4,5 km að lengd.
Helstu magntölur eru:
Vegagerð
- Fyllingar/fláafleygar úr skeringum 151.000 m3
- Fyllingar úr námum 121.000 m3
- Bergskering 2.450 m3
- Ræsalögn 1.000 m
- Styrktarlag 80.500 m3
- Burðarlag 23.200 m3
- Tvöföld klæðing 102.000 m2
- Malbik 4.100 m2
- Malarslitlag 920 m3
- Vegrið 1.930 m
- Girðingar 20 km
- Rafstrengur vegna veglýsingar 1.300 m
- Ljósastólpar 32 stk.
- Frágangur fláa og hliðarsvæða 440.000 m2
Brúargerð
- Vegrið 252 m
- Gröftur 935 m3
- Fylling við steypt mannvirki 5.000 m3
- Bergskering 50 m3
- Bergboltar 102 stk.
- Mótafletir 2.791 m2
- Steypustyrktarstál 122 tonn
- Spennt járnalögn 27,31 tonn
- Steypa 1.331 m3
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. nóvember 2023.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Ístak hf., Mosfellsbæ | 1.636.510.131 | 117,6 | 140.110 |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 1.627.375.000 | 117,0 | 130.975 |
Skagfirskir verktakar ehf., Sauðárkróki | 1.496.400.000 | 107,6 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 1.391.123.414 | 100,0 | -105.277 |