Þórsmerkurvegur (249), Suðurlandsvegur - Gljúfurá
Tilboð opnuð 28. janúar 2020. Nýbygging Þórsmerkurvegar (nr. 249-01) frá gatnamótum Hringvegar að Gljúfurá. Verkið felst í gerð alveg nýs 8 m breiðs vegar, að megninu til á nýju vegarstæði, all nokkru vestar en þar sem núverandi vegur er. Vinna skal og leggja burðarlag (0/22 mm) og styrktarlag og leggja klæðingu á veginn, ásamt efnisvinnslu.
Helstu magntölur eru:
- Fyllingar 15.105 m3
- Styrktarlag 6.070 m3
- Burðarlag 0/22 2.405 m3
- Tvöföld klæðing 9.900 m2
- Frágangur fláa 13.845 m2
Verklok eru 1. júlí 2020.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Snókur verktakar ehf., Akranesi | 146.620.650 | 301,1 | 98.087 |
Mjölnir, vörubifreiðastjórafélag, Selfossi | 67.403.075 | 138,4 | 18.869 |
Suðurtak ehf., Selfossi | 59.794.100 | 122,8 | 11.260 |
Framrás ehf. Vík | 58.169.500 | 119,4 | 9.636 |
Snilldarverk hf., Hellu | 57.613.650 | 118,3 | 9.080 |
Þjótandi ehf., Hellu | 52.252.778 | 107,3 | 3.719 |
Áætlaður verktakakostnaður | 48.700.000 | 100,0 | 166 |
Borgarverk ehf. Borgarnesi | 48.533.650 | 99,7 | 0 |