Opnun tilboða
Tálknafjarðarvegur (617) – Endurbygging - Hraðútboð
Opnun tilboða 7. september 2021. Endurbygging vegkafla ásamt gerð grjótvarnar og lagnavinnu á Tálknafjarðarvegi (617-02) um þéttbýlið á Tálknafirði. Verkefnið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Tálknafjarðarhrepps.
Helstu magntölur í verkinu eru:
- - Rif vegyfirborðs 12.200 m2
- - Fyllingar og fláafleygar 8.500 m3
- - Styrktarlag 7.000 m3
- - Burðarlag 1.370 m3
- - Malbik 12.000 m2
- - Steypt gangstétt 700 m2
- - Staðsteyptir kantsteinar 690 m2
- - Regnvatnslagnir 530 m
- - Grjót í rofvörn 6.800 m3
- - Frágangur hliðarsvæða 4.100 m2
Ljúka skal vinnu við rofvörn fyrir 20. desember 2021. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2022.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Þotan ehf., Bolungarvík | 267.817.945 | 110,1 | 17.139 |
Allt í járnum ehf., Tálknafirði | 250.679.000 | 103,1 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 243.219.554 | 100,0 | -7.459 |