Opnun tilboða

Stofnvegakerfi höfuðborgarsvæðisins - Umferðargreining 2016 - Forval

20.9.2016

Vegagerðin og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu auglýstu eftir þátttakendum í forvali vegna greiningar umferðarástands á stofnvegakerfi höfuðborgarsvæðisins, eins og það er í september til október árið 2016. Greiningunni er ætlað að varpa ljósi á umferðaraðstæður á annatímum á 37 gatnamótum og götuköflum þeim tengdum. 

Á opnunarfundi 6. september 2016 voru lesin upp nöfn þeirra umsækjenda sem óskuðu eftir þáttöku í forvalinu. 

Á síðari opnunarfundi, 20. september 2016, voru lesin upp tilboð þeirra bjóðenda sem skiluðu inn verðtilboði:

Bjóðandi Tilboð kr.
Mannvit ehf., Reykjavík 10.936.800
VSÓ ráðgjöf ehf., Reykjavík 8.800.000
Verkís hf., Reykjavík 8.443.160

: