Skeiða- og Hrunamannavegur (30) um Stóru-Laxá, eftirlit og ráðgjöf (EES)
Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf með byggingu brúar yfir Stóru-Laxá, gerð nýs vegkafla Skeiða- og Hrunamannavegar beggja vegna, breikkun vegamóta við Skarðsveg (3312) og við Auðsholtsveg (340-01) og gerð reiðstígs. Nýja brúin verður verður til hliðar við núverandi brú, tvíbreið, staðsteypt, eftirspennt bitabrú, 145 m löng í fjórum höfum. Lengd vegkafla er rúmlega 1000 m og lengd reiðstígs rúmir 300 m.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.
Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í 30. september 2022.
Nöfn þátttakenda í útboðinu:
- Efla hf., Reykjavík
- Hnit verkfræðistofa hf., Reykjavík
- Mannvit hf., Kópavogi
- VSÓ Ráðgjöf ehf., Reykjavík