Opnun tilboða
Skeiða og Hrunamannavegur (30), hringtorg Flúðum
Opnun tilboða 9. febrúar 2021. Gerð hringtorgs á Flúðum í Hrunamannahreppi eins og sýnt er á uppdráttum. Í framkvæmdinni felst einnig gerð stíga og stígtenginga eins og sýnt er á teikningum. Einnig er um að ræða færslu og endurnýjun fráveitu-, hitaveitu-, raf-, og fjarskiptalagna. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Hrunamannahrepps og veitufyrirtækja. Helstu magntölur eru:
- Verkhluti 8.01: Jarðvinna, vega- og stígagerð
- Rif malbiks og steinlagnar 6.950 m2
- Skurðsprenging 50 m
- Umframefni úr skeringum 4.250 m3
- Fyllingar í vegagerð 3.330 m3
- Fyllingar vegna göngustíga 1.130 m3
- Fláafleygar 1.700 m3
- Ofanvatnsræsi 720 m
- Brunnar og niðurföll 50 stk.
- Styrktarlag 2.770 m3
- Burðarlag 475 m3
- Malbik 10.850 m2
- Kantsteinar 1.247 m
- Hellulagnir 301 m²
- Umferðarmerki 66 stk.
- Götulýsing, skurðgröftur og strengur 1.070 m
- Ljósastaurar, uppsetning 39 stk.
- Verkhluti 8.02: Jarðvinna fyrir veitufyrirtæki
- Gröftur lagnaskurða 1.014 m
- Verkhluti 8.03: Hitaveita Flúða - Hitaveitulagnir
- Einangruð stálrör DN65 104 m
- Snjóbræðslulagnir 515 m
- Verkhluti 8.04: Hrunaljós - Fjarskiptalagnir
- Ø110 PE SDR 17,6 136 m
- Verkhluti 8.05: RARIK - Raflagnir
- Fjarlæging eldri röra 100 m
- Verkhluti 8.06: Míla, fjarskiptalagnir
- Ferhyrndur brunnur 600x900 1 stk.
- Lagning Ø75mm PVC-röra Mílu 200 m
- 20-100L koparstrengur lagður í skurð 390 m
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 13. September 2021 en hringtorg og yfirborð gatna með kantsteinum og öllum merkingum skal lokið fyrir 15. Júlí 2021.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Áætlaður verktakakostnaður | 217.000.000 | 100,0 | 40.002 |
Berg verktakar, Reykjavík | 208.381.750 | 96,0 | 31.383 |
Gröfutækni ehf., Flúðum | 176.998.500 | 81,6 | 0 |