Opnun tilboða
Reykjanesbraut (41), vegamót við Hafnarfjarðarveg
Tilboð opnuð 5. febrúar 2019. Breytingar á vegamótum Reykjanesbrautar og Fjarðarhrauns við Kaplakrika í Hafnarfirði. Verkið felst í tvöföldun vinstri beygju frá Fjarðarhrauni inn á Reykjanesbraut til austurs og nýrri aðrein meðfram Kaplakrikalæk.
Helstu magntölur eru:
- Skeringar, 2150 m3
- Styrktarlag, 1600 m3
- Burðarlag, 600 m3
- Malbikun 7400 m2
- Kantsteinar 1000 m
- Vegrið 880 m
- Stoðveggur 60 m
- Endafrágangur undirganga
Breytingum í vegamótum skal vera lokið 15. júlí 2019. Frágangi utan vega skal vera lokið 1. ágúst 2019.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Ístak hf., Reykjavík | 179.011.917 | 159,8 | 50.212 |
Gleipnir verktakar ehf., Reykjavík | 158.877.500 | 141,9 | 30.078 |
PK verk ehf., Kópavogi | 132.966.880 | 118,7 | 4.167 |
Loftorka Reykjavík ehf., Garðabæ | 128.800.000 | 115,0 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 112.000.000 | 100,0 | -16.800 |