Opnun tilboða

Bakkavegur Húsavík, Bökugarður- Bakki. Niðurstöður forvals verktaka.

4.9.2014

Forval verktaka vegna  Bakkavegar Húsavík var auglýst í framkvæmdafréttum og á Evrópska efnahagssvæðinu 2. júní  2014. Óskum um þátttöku átti að skila inn í síðasta lagi 15. júlí 2014. Eftirtaldir aðilar hafa óskað eftir að taka þátt í útboðinu:

o   ÍAV hf. ,Íslandi og Marti Contractors Lth., Sviss 

o   ÍSTAK hf., Íslandi

o   Metrostav a.s., Tékklandi og Suðurverk hf., Íslandi

o   Leonhard Nilsen & Sønner AS, Noregi

Í upptalningunni er fyrrnefndi aðilinn tilnefndur í forsvari fyrir verkið (sponsor),  þegar tveir verktakar bjóða sameiginlega. 

Vegagerðin fór yfir innsend  fjárhagsgögn og önnur innsend gögn og uppfylltu allir fjórir umsækjendur settum skilyrðum.

Í forvalsgögnum kemur fram að Vegagerðin áskilur sér rétt til að fresta útboði verksins og er ekki bundin af því að bjóða verið út.

Ákvörðun um framhald verkefnisins hefur verið frestað til ársloka 2014.