Opnun tilboða
Fáskrúðsfjarðargöng, endurbætur á rafkerfi 2013
Tilboð opnuð 22. janúar 2013. Endurbætur á rafkerfi Fáskrúðsfjarðaganga. Verkið felst í að setja upp nýja neyðarsíma og tengja þá ljósleiðara, fjölga slökkvitækja og neyðarsímaskápum og breyta núverandi skápum, færa og fjölga upplýstum umferðarmerkjum og tengja ýmsan búnað við stýrikerfi ganganna.
Helstu magntölur eru:
Uppsetning neyðarsíma | 23 | stk. |
Síma og slökkvitækjaskápar | 11 | stk. |
Upplýst umferðarskilti | 36 | stk. |
Aflstrengir | 5.500 | m |
Verkinu skal að fullu lokið 30. apríl 2013.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Launafl ehf., Reyðarfirði | 52.124.181 | 216,1 | 33.036 |
Tengill ehf., Sauðárkróki | 39.051.158 | 161,9 | 19.963 |
Rafmiðlun hf., Kópavogi | 33.851.518 | 140,3 | 14.763 |
Rafmenn ehf., Akureyri | 24.989.892 | 103,6 | 5.902 |
Áætlaður verktakakostnaður | 24.125.331 | 100,0 | 5.037 |
Rafey ehf., Egilsstöðum | 19.088.254 | 79,1 | 0 |