Hafnarfjarðarvegur (40), gatnamót í Engidal - endurbætur
Tilboð opnuð 23. ágúst 2011. Breikkun og endurbætur á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar, Álftanesvegar og Fjarðarhrauns í Engidal ásamt breikkun syðri akreinar Fjarðarhrauns að beygjurein við Hólshraun. Í verkinu er einnig innifalin gerð fráreinar af Hafnarfjarðarvegi inn í Goðatún norðan við Vífilsstaðaveg.
Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Garðabæjar og Hafnarfjarðarbæjar.
Helstu magntölur eru:
Fláafleygar úr skeringum 3.000 m3
Fylling og burðarlag úr námum 5.700 m3
Stungumalbik 5.140 m2
Eyjar með steinlögðu yfirborði 547 m2
Malbikaðir göngustígar 1.900 m2
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. desember 2011.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Hálsafell ehf., Reykjavík | 101.425.900 | 100,4 | 30.265 |
Áætlaður verktakakostnaður | 101.000.000 | 100,0 | 29.839 |
Jákvætt ehf., Hvolsvelli | 92.298.125 | 91,4 | 21.137 |
ÍAV hf., Reykjavík | 89.903.589 | 89,0 | 18.743 |
Fjarðargrjót ehf., Hafnarfirði | 78.972.490 | 78,2 | 7.811 |
Loftorka ehf., Garðabæ | 71.161.000 | 70,5 | 0 |