Opnun tilboða

Álftanesvegur (415), Hafnarfjarðarvegur - Bessastaðavegur, eftirlit

31.3.2009

Tilboð opnuð 31. mars 2009 í eftirlit með gerð Álftanesvegar. Verkið felst í því að leggja nýjan 4 km langan veg frá Engidal að Bessastaðavegi. Gera skal mislæg gatnamót ásamt að- og fráreinum við Hraunsholt í Engidal, byggja tvenn göng fyrir gangandi umferð og gera hringtorg við Bessastaðaveg. Breyta skal legu strengja, vatns- og hitaveitulagna. Þá á að leggja nýja háspennu- og rafdreifistrengi, síma-, vatns-, og hitaveitulagnir. Einnig fylgir með í verkinu landmótun, sáning og yfirborðsjöfnun hrauns innan verksvæðisins.

Verkið skiptist í 3 verkáfanga með nokkrum millidagsetningum; 1. áfanga á að vera lokið þann 1. desember 2009, 2. áfanga þann 1. ágúst 2010 og 3. áfanga og þar með verkinu í heild 31. ágúst 2010.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnivals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 16. mars 2009. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.

Tilboðum var skilað 31. mars 2009 og var þá lesið upp hverjir skiluðu inn tilboðum.

Síðari opnunarfundur verður þriðjudaginn 7. apríl 2009,  kl.14:15, þar sem lesnar verðar upp einkunnir bjóðenda í hæfnimati og verðtilboð opnuð

Bjóðendur í stafrófsröð
Almenna verkfræðistofan hf., Reykjavík
Efla hf., Reykjavík
Guðmundur Þ. Björnsson, Kópavogi
Strendingur ehf., Hafnarfirði
Verkfæðistofan Hnit hf., Reykjavík
Verkís hf., Reykjavík
VSB Verkfræðistofa ehf., Hafnarfirði
VSÓ - Ráðgjöf ehf., Reykjavík