Opnun tilboða

Vetrarþjónusta Norðaustursvæði 2007-2010, Hringvegur (1), Höfn - Öræfi

14.8.2007

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreiðum, ásamt upplýsingagjöf, á Hringvegi (1) og Hafnarvegi (99), frá Höfn í Hornarfirði að sýslumörkum Vestur-Skaftafellssýslu á Skeiðarársandi.

Helstu magntölur, á ári, eru:

·                  Snjómokstur og hálkuvörn með vörubílum                      230 klst.

·                    Snjómokstur og hálkuvörn með vörubílum                   9.200   km

Verktími er frá 15. október 2007 til og með 15. maí 2010.

 

Tilboð opnuð 14.08.07.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Rósaberg ehf. 6.655.000 136,0 1.603
Ólafur Halldórsson 5.052.500 103,3 0
Áætlaður verktakakostnaður 4.892.000 100,0 -161

 

Ólafur Halldórsson skilaði einnig inn frávikstilboði.