Opnun tilboða

Vetrarþjónusta í Barðastrandarsýslum 2016-2019

22.3.2016

Tilboð opnuð 22. mars 2016. Vetrarþjónusta árin 2016-2019 á eftirtöldum leiðum:

  • Vestfjarðavegur (60): Fjarðarhornsá í Kollafirði – Flókalundur 56 km.
  • Barðastrandarvegur (62): Flókalundur – Patreksfjörður 60 km.
  • Bíldudalsvegur (63): Barðastrandarvegur - Bíldudalsflugvöllur 34 km.
  • Tálknafjarðavegur (617): Bíldudalsvegur – Tálknafjörður 2,9 km.
  • Ketildalavegur (619): Bíldudalsvegur – Hafnarteigur 1,2 km.

Helstu magntölur á ári eru:

  • Akstur mokstursbíla 38.300 km.

Verkinu skal að fullu lokið 30. apríl 2019.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Kubbur ehf., Ísafirði 42.583.160 143,4 14.736
Allt í járnum ehf., Tálknafirði 39.992.600 134,7 12.146
Áætlaður verktakakostnaður 29.686.125 100,0 1.839
Lás ehf. og Jón Sigurður Bjarnason, Bíldudal 27.846.800 93,8 0