Hringvegur (1), Skarhólabraut - Langitangi
Tilboð opnuð 5. maí 2020. Breikkun og endurbætur Hringvegar (1) í Mosfellsbæ, milli Skarhólabrautar og Langatanga. Verkið felst í:
Vegsvæðið skal breikka þ.a. hægt verði að koma fyrir 4 akreinum og aðskilja akstursstefnur með vegriði. Breikkunin innifelur bergskeringar inn í Lágafell auk annarra skeringa. Umframefni skal koma fyrir í hljóðmönum við veginn. Byggja skal hljóðvarnarveggi á steyptum undirstöðum og klæða með sementsbundnum trefjaplötum. Einnig skal byggja biðstöð Strætó með tilheyrandi stígatengingum. Innifalið er einnig allur: frágangur yfirborðs raskaðra svæða, plöntun og gróðursetning, öll nauðsynleg lagnavinna, uppsetning ljósastaura og allar tengingar þeirra. Lengd vegkaflans er um 1.100 m.
Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Mosfellsbæjar.
Helstu magntölur eru:
Verkhluti 8.01 Vegagerð og lýsing
- Rif malbiks og gangstétta 6.000 m2
- Bergskeringar 13.000 m3
- Fláafleygar og lausar skeringar 15.000 m3
- Fyllingar í vegagerð 9.700 m3
- Styrktarlag 3.300 m3
- Burðarlag 1.800 m3
- Ofanvatnsræsi 150 m
- Malbik 31.200 m2
- Gangstígar 1.100 m2
- Vegrið 2.400 m
- Götulýsing, skurðgröftur og strengur 2.500 m
- Ljósastaurar 60 stk.
Verkhlutar 8.02 og 8.03 Hljóðvarnarveggir
- Gröftur 1.700 m3
- Steypa 253 m3
- Járnalögn 20.300 kg
- Mót 1.463 m2
- Stálstoðir 1.6m 179 stk.
- Stálstoðir 2.4m 52 stk.
- Klæðing, sementsbundnar trefjaplötur 2.430 m2
- Frágangur hljóðmana, jöfnun og sáning 7.500 m2
- Gróðurbeð 240 m2
- Tré og runnar 280 stk.
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. desember 2020.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Áætlaður verktakakostnaður | 706.000.000 | 100,0 | 215.620 |
Háfell ehf. Reykjavík | 609.369.540 | 86,3 | 118.990 |
Ístak hf., Mosfellsbæ | 557.953.098 | 79,0 | 67.573 |
Grafa og grjót ehf., Hafnarfirði | 507.785.440 | 71,9 | 17.405 |
Loftorka Reykjavík ehf., Garðabæ | 490.380.000 | 69,5 | 0 |