Opnun tilboða
Hringvegur (1), Laugaland-Ólafsfjarðarvegur, þurrfræsing og malbik
Opnun tilboða 29. júní 2021. Endurbætur á Hringvegi (1), milli Laugalands og Ólafsfjarðarvegar (82), samtals á 1,7 km. Þurrfræsa á veginn, rétta af með viðbótar burðarlagi og yfirleggja með malbiki.
Helstu magntölur:
- Þurrfræsing 12.420 m2
- Efra burðarlag afrétting 972 m3
- Fláar 400 m3
- Malbik 12.243 m2
- Axlir 680 m3
Verki skal að fullu lokið 15. september 2021.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Hlaðbær-Colas hf., Hafnarfirði | 111.900.000 | 145,5 | 6.716 |
Malbikun Norðurlands, Akureyri | 111.564.100 | 145,1 | 6.380 |
Malbikun Akureyrar, Akureyri | 105.184.000 | 136,8 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 76.912.468 | 100,0 | -28.272 |